Fara beint í efnið

Prentað þann 5. maí 2024

Eldri útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 23. sept. 2021 – 1. des. 2021 Sjá núgildandi
Sýnir breytingar gerðar 23. sept. 2021 af rg.nr. 1058/2021

477/2016

Reglugerð um sértækar reglur um opinbert eftirlit með tríkínu í kjöti.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunareftirfarandi ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 4/2016, frá 6. febrúar 2016, öðlast eftirtalineftirtaldar ESB-gerðgerðir gildi hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1375 frá 10. ágúst 2015 um sértækar reglur um opinbert eftirlit með tríkínu í kjöti. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 4/2016, frá 6. febrúar 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 18, frá 31. mars 2016, bls. 114.

  2.  Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1478 frá 14. október 2020 um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1375 að því er varðar sýnatöku, tilvísunargreiningaraðferð og innflutningsskilyrði í tengslum við eftirlit með tríkínu. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 163/2021, frá 11. júní 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 49, frá 22. júlí 2021, bls. 113.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

5. gr.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi. Á sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 136/2010 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2075/2005 um sértækar reglur um opinbert eftirlit með tríkínu í kjöti, auk áorðinna breytinga.

 Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. maí 2016. 

 F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

 Ólafur Friðriksson. 

 Eggert Ólafsson. 

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.