Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 25. apríl 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 23. feb. 2006 – 24. maí 2007 Sjá núgildandi

162/2006

Reglugerð um gjaldtöku fyrirtækjaskrár, hlutafélagaskrár og samvinnufélagaskrár.

I. KAFLI Gjaldtaka fyrirtækjaskrár, hlutafélagaskrár og samvinnufélagaskrár.

1. gr.

Ríkisskattstjóri skal taka gjald fyrir skráningu í fyrirtækjaskrá, hlutafélagaskrá, samvinnufélagaskrá o.fl. og fyrir vottorð og afhendingu upplýsinga úr skránum eftir því sem nánar er kveðið á um í þessum kafla.

2. gr.

1. Skráningargjald og útgáfa kennitölu í fyrirtækjaskrá kr. 5.000
2. Tölvuskráð útskrift um einstök hlutafélög, einkahlutafélög, samvinnufélög o.fl. kr. 700
3. Vottorð um einstök hlutafélög, einkahlutafélög, samvinnufélög o.fl. skv. tölvuskráðum upplýsingum kr. 1.000
4. Sérvottorð kr. 1.800
5. Gjald fyrir ljósritun gagna - fyrstu 20 blöðin kr. 1.000
6. Gjald fyrir ljósritun gagna umfram 20 blöð (50 kr. fyrir hvert blað umfram 20) kr. 50

3. gr.

Við skráningu í fyrirtækjaskrá, skv. 1. tölul. 2. gr. skal auðkenna skráðan aðila með kennitölu. Menn með eigin atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi skulu þó auðkenndir í fyrirtækjaskrá með kennitölu þeirra samkvæmt þjóðskrá.

4. gr.

Í vottorði skv. 3. tölul. 2. gr. kemur fram heiti félags, heimilisfang, kennitala og póstfang. Jafnframt eru útibú tilgreind ef til eru. Þá er getið um rekstrarform, stjórn félagsins, framkvæmdastjóra, prókúruhafa, hverjir riti firmað, endurskoðendur og atvinnugreinaflokkun. Hlutafé eða stofnfé er tilgreint, lausnarskylda á hlutum og hömlur á meðferð hlutabréfa ef við á. Tilgangi félagsins er einnig lýst.

5. gr.

Í sérvottorði skv. 4. tölul. 2. gr. koma fram sérgreindar umbeðnar upplýsingar um einstök hlutafélög, einkahlutafélög og samvinnufélög, sem teknar eru saman sérstaklega í hverju einstöku tilviki.

6. gr.

Með samningi við ríkisskattstjóra getur fyrirtæki eða stofnun fengið rafrænt afrit af gagnagrunni fyrirtækjaskrár til eigin nota og/eða miðlunar tiltekinna upplýsinga úr skránni til annarra. Gjaldtaka fyrir slíka heimild skal vera:

Fyrir afrit af fyrirtækjaskrá eða rafræna miðlun:

1. Árgjald fyrir rafrænt afrit gagna úr fyrirtækjaskrá kr. 100.800
2. Fyrir hverja rafræna uppflettingu í afriti gagnagrunns kr. 4

Fyrir úrtak sem inniheldur nöfn og heimilisföng fyrirtækja:

1. Lágmarksgjald fyrir 500 fyrirtæki eða færri kr. 3.500
2. Fyrir hvert fyrirtæki umfram 500 og upp í 2.000 kr. 5
3. Fyrir hvert fyrirtæki umfram 2.000 kr. 3

Fyrir úrtak sem að auki inniheldur nöfn framkvæmdastjóra/forráðenda:

1. Lágmarksgjald fyrir 500 fyrirtæki eða færri kr. 5.000
2. Fyrir hvert fyrirtæki umfram 500 og upp í 2.000 kr. 7
3. Fyrir hvert fyrirtæki umfram 2.000 kr. 5

7. gr.

Með samningi við ríkisskattstjóra getur fyrirtæki eða stofnun fengið rafrænan aðgang að gagnagrunni hlutafélagaskrár og samvinnufélagaskrár og heimild til miðlunar tiltekinna upplýsinga úr skránum til annarra. Gjaldtaka fyrir slíka heimild skal vera:

1. Árgjald sem innifelur 600 uppflettingar í gagnagrunninum kr. 180.000
2. Fyrir hverja uppflettingu umfram 600 á ári kr. 300
3. Fyrir hverja uppflettingu samþykkta, stofnsamninga og stofnfundargerða kr. 1.000

II. KAFLI Gjöld í ríkissjóð.

8. gr.

Ríkisskattstjóri skal á grundvelli laga um aukatekjur ríkissjóðs nr. 88/1991, með síðari breytingum, innheimta í ríkissjóð gjöld sem hér segir:

1. Fyrir skráningu hlutafélags og samvinnufélags kr. 165.000
2. Fyrir skráningu erlends félags (útibús) kr. 165.000
3. Fyrir skráningu einkahlutafélags og sjálfseignarstofnunar sem stundar atvinnurekstur kr. 82.500
4. Fyrir umskráningu einkahlutafélags í hlutafélag kr. 82.500
5. Fyrir umskráningu hlutafélags í einkahlutafélag kr. 5.500
6. Fyrir aukatilkynningu og skráningu breytinga kr. 1.100

III. KAFLI Ýmis ákvæði.

9. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 3. mgr. 6. gr. og 2. mgr. 8. gr. laga nr. 17/2003, um fyrirtækjaskrá, 22. gr. laga nr. 88/1991, um aukatekjur ríkissjóðs með síðari breytingum, 2. mgr. 147. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995 með síðari breytingum, 2. mgr. 121. gr. laga um einkahlutafélög, nr. 138/1994, með síðari breytingum og 2. mgr. 10. gr. laga um samvinnufélög nr. 22/1991, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi. Frá sama tíma falla úr gildi reglugerð nr. 474/2003, um útgáfu kennitölu við skráningu í fyrirtækjaskrá og reglugerð nr. 94/1998, um aðgang að hlutafélagaskrá og samvinnufélagaskrá og gjaldtöku.

Fjármálaráðuneytinu, 8. febrúar 2006.

F. h. r.

Baldur Guðlaugsson.

Maríanna Jónasdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.