Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 27. júlí 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 1. júlí 2024

162/2006

Reglugerð um gjaldtöku fyrirtækjaskrár, hlutafélagaskrár, samvinnufélagaskrár, sjálfseignarstofnanaskrár, almannaheillafélagaskrár, firmaskrár o.fl.

I. KAFLI Gjaldtaka fyrirtækjaskrár, hlutafélagaskrár, samvinnufélagaskrár, sjálfseignarstofnanaskrár, almannaheillafélagaskrár, firmaskrár o.fl.

1. gr.

Ríkisskattstjóri skal taka gjald fyrir útgáfu kennitölu, skráningu í fyrirtækjaskrá, hlutafélagaskrá, samvinnufélagaskrá, sjálfseignarstofnanaskrá, almannaheillafélagaskrá, firmaskrá o.fl. og fyrir afhendingu vottorða, upplýsinga og gagna úr skránum eftir því sem nánar er kveðið á um í þessum kafla.

Engin gjaldtaka skal þó vera fyrir aðgang að upplýsingum skv. 4. gr.

2. gr.

Gjald fyrir útgáfu kennitölu og skráningu í fyrirtækjaskrá kr. 5.000
Gjald fyrir afhendingu gagna á pappír er sem hér segir:
1. Endurrit eða ljósrit af samþykktum, stofnsamningum, kr. 1.500
stofnfundargerðum, aukatilkynningum eða öðrum gögnum
2. Vottorð um einstök hlutafélög, einkahlutafélög, samvinnufélög o.fl. skv. tölvuskráðum upplýsingum kr. 1.500
3. Sérútbúið vottorð kr. 3.000
Gjald fyrir afhendingu gagna í vefverslun á upplýsingasíðu Skattsins er sem hér segir:
1. Rafrænt innsigluð endurrit eða ljósrit af samþykktum, kr. 1.000
stofnsamningum, stofnfundargerðum, aukatilkynningum
eða öðrum gögnum
2. Rafrænt innsigluð vottorð um einstök hlutafélög, einkahlutafélög kr. 1.000
samvinnufélög o.fl. skv. tölvuskráðum upplýsingum

3. gr.

Við skráningu í fyrirtækjaskrá, skv. 1. tölul. 2. gr. skal auðkenna skráðan aðila með kennitölu. Menn með eigin atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi skulu þó auðkenndir í fyrirtækjaskrá með kennitölu þeirra samkvæmt þjóðskrá.

4. gr.

Eftirfarandi upplýsingar skulu koma fram við uppflettingu á vef Skattsins, vefþjónustu eða sambærilegu vefviðmóti, eftir því sem við á um viðkomandi félagaform:

  1. heiti félags og útibú tilgreind ef við á,
  2. erlent aukheiti,
  3. rekstrarform,
  4. kennitala,
  5. heimilisfang,
  6. póstfang,
  7. stofndagur og/eða skráningardagur,
  8. nöfn, kennitölur og lögheimili stjórnar- og varastjórnarmanna,
  9. nöfn, kennitölur og lögheimili félagsmanna sameignar- og samlagsfélaga,
  10. nöfn, kennitölur og lögheimili útibússtjóra,
  11. nöfn, kennitölur og lögheimili framkvæmdastjóra,
  12. nöfn, kennitölur og lögheimili prókúruhafa,
  13. hverjir riti firmað,
  14. nöfn, kennitölur og lögheimili endurskoðenda eða skoðunarmanna,
  15. atvinnugreinaflokkun,
  16. slit félags,
  17. hlutafé eða stofnfé,
  18. hvort lausnarskylda sé á hlutum eða hömlur á meðferð hlutabréfa ef við á,
  19. dagsetning samþykkta eða félagssamnings,
  20. tilgangur félags,
  21. reikningsár,
  22. fjárhæð hluta og atkvæðisréttur hluthafa,
  23. hvort nokkrum hlutum í félaginu skuli fylgja sérstök réttindi,
  24. hverjar þær upplýsingar sem fyrirtækjaskrá telur nauðsynlegt eða hagkvæmt að birta vegna hagsmuna opinberra aðila eða miðlunar upplýsinga til opinberra aðila, fyrirtækja og almennings.

5. gr.

Í sérvottorði skv. 4. tölul. 2. gr. koma fram sérgreindar umbeðnar upplýsingar um einstök hlutafélög, einkahlutafélög, samvinnufélög og almannaheillafélög, sem teknar eru saman sérstaklega í hverju einstöku tilviki.

6. gr.

Ríkisskattstjóra er heimilt að gera samning um tengingu við vefgátt eða sambærilegt viðmót vegna aðgangs að upplýsingum skv. 4. gr. til eigin nota viðsemjanda á grundvelli notkunar hans. Uppfletting skal vera gjaldfrjáls, sbr. 2. mgr. 1. gr.

7. gr.

Með samningi við ríkisskattstjóra getur fyrirtæki eða stofnun fengið rafrænan aðgang að gagnagrunni fyrirtækjaskrár, hlutafélagaskrár, samvinnufélagaskrár, sjálfseignarstofnanaskrár, almannaheillafélagaskrár og firmaskrár og heimild til miðlunar tiltekinna upplýsinga úr skránum til annarra. Gjaldtaka fyrir slíka heimild skal vera:

1. Stofngjald/tengigjald kr. 195.900
2. Mánaðarlegt þjónustugjald kr. 9.900
3. Fyrir sérhvert vefkall þar sem sóttar eru samþykktir, kr. 1.000
stofnsamningar, stofnfundargerðir, aukatilkynningar
eða önnur gögn
4. Uppfletting upplýsinga skv. 4. gr. kr. 0

II. KAFLI Gjöld í ríkissjóð.

8. gr.

Um gjaldtöku fyrir skráningu félaga, sjóða og stofnana, og skráningu breytinga fer að öðru leyti eftir lögum nr. 88/1991, um aukatekjur ríkissjóðs.

III. KAFLI Ýmis ákvæði.

9. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 3. mgr. 6. gr. og 2. mgr. 8. gr. laga nr. 17/2003, um fyrirtækjaskrá, 22. gr. laga nr. 88/1991, um aukatekjur ríkissjóðs með síðari breytingum, 2. mgr. 147. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995 með síðari breytingum, 2. mgr. 121. gr. laga um einkahlutafélög, nr. 138/1994, með síðari breytingum og 2. mgr. 10. gr. laga um samvinnufélög nr. 22/1991, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi. Frá sama tíma falla úr gildi reglugerð nr. 474/2003, um útgáfu kennitölu við skráningu í fyrirtækjaskrá og reglugerð nr. 94/1998, um aðgang að hlutafélagaskrá og samvinnufélagaskrá og gjaldtöku.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.