Prentað þann 22. des. 2024
106/2014
Reglugerð um skráningu trúfélaga og lífsskoðunarfélaga.
1. gr.
Sýslumaðurinn á SiglufirðiNorðurlandi eystra annast skráningu trúfélaga og lífsskoðunarfélaga og fer að öðru leyti með verkefni sem sýslumanni eru falin í lögum nr. 108/1999, um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög.
2. gr.
Lágmarksfjöldi félagsmanna til þess að heimilt sé að skrá trúfélag eða lífsskoðunarfélag er 25.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 2. mgr. 2. gr., 4. mgr. 3. gr. og 10. gr. laga nr. 108/1999 um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög, með síðari breytingum, sbr. 19. gr. laga nr. 145/2013, öðlast gildi 1. febrúar 2014.
Innanríkisráðuneytinu, 21. janúar 2014.
Hanna Birna Kristjánsdóttir.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.