Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 19. apríl 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 31. jan. 2014 – 1. jan. 2015 Sjá núgildandi

106/2014

Reglugerð um skráningu trúfélaga og lífsskoðunarfélaga.

1. gr.

Sýslumaðurinn á Siglufirði annast skráningu trúfélaga og lífsskoðunarfélaga og fer að öðru leyti með verkefni sem sýslumanni eru falin í lögum nr. 108/1999, um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög.

2. gr.

Lágmarksfjöldi félagsmanna til þess að heimilt sé að skrá trúfélag eða lífsskoðunarfélag er 25.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 2. mgr. 2. gr., 4. mgr. 3. gr. og 10. gr. laga nr. 108/1999 um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög, með síðari breytingum, sbr. 19. gr. laga nr. 145/2013, öðlast gildi 1. febrúar 2014.

Innanríkisráðuneytinu, 21. janúar 2014.

Hanna Birna Kristjánsdóttir.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.