Fara beint í efnið

Verklag um fylgdarlaus börn sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd

Þetta verklag er nýtt og enn í vinnslu.

Í þessari handbók er að finna sameiginlegt verklag Útlendingastofnunar, Vinnumálastofnunar, Barna- og fjölskyldustofu, Lögreglunnar á Suðurnesjum, Ríkislögreglustjóra og barnverndarþjónustna.

    Aldursgreiningarferlið

    1. Útlendingastofnun boðar barn í aldursgreiningarviðtal með því að senda fundarboð á barnverndarþjónustu og löglærðan talsmann barns.

    2. Í viðtalinu er ferlið útskýrt, skrifað undir samþykki vegna aldursgreiningar og barn svarar tilteknum spurningum frá tannlækni er varða heilsufar.

    3. Útlendingastofnun pantar tíma hjá tannlækni og í myndatöku vegna aldursgreiningar og sendir upplýsingar um bókaða tíma til barnaverndarþjónustu og löglærðs talsmanns barns.

    4. Barnaverndarþjónusta mætir með barni í aldursgreiningu og sendir tilkynningu með tölvubréfi á netfangið barnateymi@utl.is þegar myndatöku er lokið.

    5. Þegar niðurstaða úr aldursgreiningu liggur fyrir er aldursgreiningarskýrsla send á hinn löglærða talsmann barns og barnaverndarþjónustuna. Talsmaður barns fær frest til þess að skila inn gögnum í tengslum við andmæli ákvörðunar, ef barn er metið 18 ára eða eldra. (frestur er 2 dagar, hægt að óska eftir frekari fresti)

    6. Þegar andmæli hafa borist Útlendingastofnun fer fram heildarmat á gögnum um aldur, þ.e. frásögn, aldursgreiningarskýrsla, framlögð gögn og andmæli löglærðs talsmanns barns.

    7. Þegar frestur er liðinn og heildarmat hefur verið framkvæmt sendir Útlendingastofnun löglærðum talsmanni barns kynningu á niðurstöðu aldursgreiningar. Útlendingastofnun sendir einnig lokaniðurstöðu aldursgreiningar til barnaverndarþjónustu og Barna- og fjölskyldustofu með tölvubréfi.

    8. Ef aldur umsækjanda er metinn 18 ára eða eldri, er tilkynningin á þann veg að mat Útlendingastofnunar sé að umsækjandi sé metinn eldri en 18 ára og verði mál hans því afgreitt sem mál fullorðins einstaklings.