Útlendingastofnun boðar barn í aldursgreiningarviðtal með því að senda fundarboð á barnverndarþjónustu og löglærðan talsmann barns.
Í viðtalinu er ferlið útskýrt, skrifað undir samþykki vegna aldursgreiningar og barn svarar tilteknum spurningum frá tannlækni er varða heilsufar.
Útlendingastofnun pantar tíma hjá tannlækni og í myndatöku vegna aldursgreiningar og sendir upplýsingar um bókaða tíma til barnaverndarþjónustu og löglærðs talsmanns barns.
Barnaverndarþjónusta mætir með barni í aldursgreiningu og sendir tilkynningu með tölvubréfi á netfangið barnateymi@utl.is þegar myndatöku er lokið.
Þegar niðurstaða úr aldursgreiningu liggur fyrir er aldursgreiningarskýrsla send á hinn löglærða talsmann barns og barnaverndarþjónustuna. Talsmaður barns fær frest til þess að skila inn gögnum í tengslum við andmæli ákvörðunar, ef barn er metið 18 ára eða eldra. (frestur er 2 dagar, hægt að óska eftir frekari fresti)
Þegar andmæli hafa borist Útlendingastofnun fer fram heildarmat á gögnum um aldur, þ.e. frásögn, aldursgreiningarskýrsla, framlögð gögn og andmæli löglærðs talsmanns barns.
Þegar frestur er liðinn og heildarmat hefur verið framkvæmt sendir Útlendingastofnun löglærðum talsmanni barns kynningu á niðurstöðu aldursgreiningar. Útlendingastofnun sendir einnig lokaniðurstöðu aldursgreiningar til barnaverndarþjónustu og Barna- og fjölskyldustofu með tölvubréfi.
Ef aldur umsækjanda er metinn 18 ára eða eldri, er tilkynningin á þann veg að mat Útlendingastofnunar sé að umsækjandi sé metinn eldri en 18 ára og verði mál hans því afgreitt sem mál fullorðins einstaklings.