Fara beint í efnið

Leið til læsis – lesskimun fyrir 1. bekk - leiðbeiningar

Þar sem Skólagátt hefur verið lögð niður verða niðurstöður Leið til læsis – lesskimunar fyrir 1. bekk nú skráðar í Matsferil. Skráningarferlið hefur verið endurskoðað og gert skýrara og aðgengilegra fyrir notendur. Framsetning á niðurstöðum hefur einnig tekið breytingum og verður hún að mestu leyti í samræmi við framsetningu á niðurstöðum fyrir önnur stöðluð próf Matsferils. Í leiðbeiningunum eru notendur leiddir í gegnum nýtt skráningarfyrirkomulag og nýja framsetningu á niðurstöðum ásamt því að hnykkt er á því hvernig nota skal niðurstöður skimunarinnar. Tekið skal fram að sjálft matstækið og annað sem tilheyrir því verður ekki endurskoðað að sinni og því verður fyrirlögnin með sama sniði og undanfarin ár.

    Skráning á svörum nemenda

    Þegar búið er að leggja skimunina fyrir eru svör nemenda skráð í Matsferil. Við hönnun skráningarviðmótsins var lögð áhersla á að gera það notendavænt og minnka líkur á að svör yrðu rangt skráð. Jafnframt var lögð áhersla á að gera kennurum kleift að vera snöggir að skrá svör og gera hlé á skráningu ef nauðsyn krefur.