Fara beint í efnið

Leið til læsis – lesskimun fyrir 1. bekk - leiðbeiningar

Þar sem Skólagátt hefur verið lögð niður verða niðurstöður Leið til læsis – lesskimunar fyrir 1. bekk nú skráðar í Matsferil. Skráningarferlið hefur verið endurskoðað og gert skýrara og aðgengilegra fyrir notendur. Framsetning á niðurstöðum hefur einnig tekið breytingum og verður hún að mestu leyti í samræmi við framsetningu á niðurstöðum fyrir önnur stöðluð próf Matsferils. Í leiðbeiningunum eru notendur leiddir í gegnum nýtt skráningarfyrirkomulag og nýja framsetningu á niðurstöðum ásamt því að hnykkt er á því hvernig nota skal niðurstöður skimunarinnar. Tekið skal fram að sjálft matstækið og annað sem tilheyrir því verður ekki endurskoðað að sinni og því verður fyrirlögnin með sama sniði og undanfarin ár.

    Undirbúningur og fyrirlögn skimunarinnar

    Hluti af undirbúningi kennara fyrir próffyrirlögn er að kynna sér matstækið vel, hvaða færni það metur og hvernig fyrirlögnin er framkvæmd. Vel undirbúin próffyrirlögn eykur líkur á að hún gangi vel fyrir sig og að niðurstöður verði áreiðanlegar og réttmætar.