Leið til læsis – lesskimun fyrir 1. bekk
Markmið skimunarprófa er að finna börn sem glíma mögulega við vanda á tilteknu sviði svo hægt sé að veita viðeigandi aðstoð sem fyrst (snemmtæk íhlutun) eða skipuleggja nám í samræmi við hæfni og þarfir hvers nemanda.
Lesskimunin er stöðluð en það þýðir að form, efnisinnihald, matsreglur og reglur um fyrirlögn hennar eru fyrir fram ákveðin. Niðurstöðurnar veita upplýsingar um frammistöðu barns miðað við jafnaldra á landsvísu og hvort það þurfi aðstoð eða ekki. Notkun skimunarinnar er valkvæð en hún veitir dýrmætar vísbendingar um forsendur barna til að takast á við formlegt lestrarnám við upphaf skólagöngu.
Leið til læsis – lesskimun fyrir 1. bekk kom út árið 2011 og var skimunin hugsuð sem hluti af fjölþættu stuðningskerfi í lestrarkennslu. Viðmið skimunarinnar voru uppfærð haustið 2026 og byggja á gögnum sem hafa safnast fyrir á árabilinu 2016-2025.
Undirþættir skimunarinnar eru þrír sem kanna málþroska, þekkingu á bókstöfum/hljóðum og hljóðkerfisvitund . Skimunin er lögð fyrir lítinn hóp nemenda í einu og tekur fyrirlögn um eina kennslustund. Prófúrlausnir eru skráðar af kennurum í viðmót Matsferils og liggja niðurstöður fyrir um leið og skráningu er lokið. Skimunin er opin til fyrirlagnar frá 1.-31. október.
Lesskimuninni fylgir ítarleg handbók sem byggir á hugmyndafræði stigskiptrar kennslu og leiðbeinir kennurum hvernig hægt er að bregðast við niðurstöðum skimunarinnar. Leið til læsis: Handbók er aðgengileg í heild sinni á Læsisvefnum. Öll önnur nauðsynleg gögn er að finna í Matsferli á meðan fyrirlagnartímabilið er opið.
Mikilvægt er að nota niðurstöður skimunarinnar til skipulagningar kennslu sem mætir þörfum nemenda. Það er sjaldan mikilvægara en þegar grunnurinn er lagður. Sé hann traustur er hægt að koma í veg fyrir eða draga úr námserfiðleikum síðar meir.
Leið til læsis – lesskimun fyrir 1. bekk - leiðbeiningar
Í þessum leiðbeiningum er einkum fjallað um það hvernig skráning á svörum nemenda er háttað og hvernig niðurstöður skimunarinnar birtast í Matsferli. Í leiðbeiningunum er einnig fjallað um mikilvægi þess að bregðast markvisst við niðurstöðum um leið og þær liggja fyrir. Skimuninni fylgir handbók sem er full af fróðleik og aðferðum til að efla færni nemenda.