Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Lesfimi-og stuðningspróf

Lesfimiprófið er stöðu- og framvindupróf en tilgangur þess er að draga upp sem nákvæmasta mynd af stöðu og þróun lestrar hjá nemendum, hvar áskoranir og styrkleikar liggja svo hægt sé að mæta þörfum nemenda í lestrarnámi á árangursríkan hátt. Stuðningsprófin eru tvö: Orðleysulestur og mat á sjónrænum orðaforða. Tilgangur stuðningsprófanna er að veita nánari upplýsingar um stöðu grunnaðferða í lestri.

Lesfimi- og stuðningsprófin eru stöðluð en það þýðir að form, efnisinnihald, matsreglur og reglur um fyrirlögn prófanna eru fyrir fram ákveðin. Þar sem hverju prófi fylgja aldursbundin viðmið um frammistöðu er mögulegt að bera niðurstöður hvers nemanda, bekkjar eða skóla saman við landsmeðaltal.

Hægt er að leggja lesfimi- og stuðningsprófin fyrir þrisvar á ári: Í september, janúar og maí, frá fyrsta til síðasta virka dags hvers mánaðar. Þessi sveigjanleiki gerir skólum kleift að aðlaga notkun prófanna að eigin kennsluskipulagi. Notkun prófanna er valkvæð en þar sem þau veita dýrmætar upplýsingar um stöðu- og framvindu lestrarnáms hefur notkun þeirra verði mjög útbreidd og þau fest sig í sessi.

Mikilvægt er að nota niðurstöður prófa til skipulagningar kennslu í samræmi við stöðu nemenda, við mat á árangri kennslunnar við lok lotu, annar eða skólaárs. Upplýsingarnar úr prófunum eru mikilvægar fyrir stefnumótun skóla, til forgangsröðunar og þegar ákvarða þarf áherslur í starfsþróun kennara svo dæmi séu tekin. Niðurstöður verða einnig notaðar til að fylgjast með gæðum skólastarfs og þróun og breytingum innan menntakerfisins.

Lesfimi og stuðningspróf Matsferil - upplýsingafundir

Handbók um notkun lesfimi- og stuðningsprófa Matsferils

Í handbókinni eru upplýsingar um notkun lesfimi- og stuðningsprófa Matsferils. Þar er fjallað um prófin sjálf, undirbúning, hagnýt atriði varðandi fyrirlögn prófanna, framsetningu á niðurstöðum og notkun þeirra í skólastarfi. Loks er komið inn á mikilvægi góðrar læsisstefnu, viðfangsefni í lestrarkennslu og heimalestri, og að lokum er fjallað um samstarf skóla og forsjáraðila í lestrarnámi barna.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@midstodmenntunar.is
Póstlistaskráning

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Víkurhvarf 3
203 Kópavogur

Kennitala: 660124-1280