Matsferill - Leikskólar
Efnisyfirlit
LANIS er skimunarlisti sem metur frávik í tali og málþroska þriggja ára barna.
HLJÓM-2 er aldursbundin skimun sem er lögð fyrir til að meta hljóðkerfis- og málvitund barna í elsta árgangi leikskólans.
LANIS
LANIS er skimunarlisti sem metur frávik í tali og málþroska þriggja ára barna. Foreldrar og leikskólakennarar fylla út listann. Markmiðið er að bera kennsl á börn sem eiga í erfiðleikum með að tjá sig og læra tungumál svo hægt sé að veita þeim markvissa örvun í tæka tíð.
Í handbókinni er að finna mikilvægar upplýsingar um LANIS. Þar er meðal annars fjallað um hagnýtar upplýsingar um útfyllingu listans bæði fyrir eintyngd og fjöltyngd börn, hvernig túlka skuli niðurstöður og í hvaða tilfellum þurfi íhlutun í kjölfar fyrirlagnar. Lestur handbókarinnar eykur líkur á réttmætri útfyllingu og túlkun niðurstöðu og tryggir sameiginlega sýn leikskóla á tilgang skimunarinnar. Ítarlegri handbók um þróun og stöðlun listans er væntanleg.
Kennarar
Forsjáraðilar
Hljóm-2
HLJÓM-2 er aldursbundin skimun sem er lögð fyrir til að meta hljóðkerfis- og málvitund barna í elsta árgangi leikskólans. Skimunin er framkvæmd í því skyni að greina þau börn sem eru í áhættu vegna lestrarerfiðleika þegar formlegt lestrarnám hefst. Slök hljóðkerfis- og málvitund er talin aðalorsök lestrarvanda hjá 88% barna (9 af hverjum 10 börnum). Undanfarna áratugi hefur mikil áhersla verið lögð á að börnum sé strax frá unga aldri boðið markvisst upp á leiki og verkefni til að örva hljóðkerfis- og málvitund þeirra og að þeim sem virðast eiga í erfiðleikum sé sinnt sérstaklega. Leikskólaárin eru því sérlega mikilvæg fyrir snemmtæka íhlutun.
Til að geta lagt fyrir HLJÓM-2 þarf prófandi að hafa lokið réttindanámskeiði. Námskeiðið ásamt fylgigögnum er aðgengilegt á innsláttargátt fyrir niðurstöður úr prófinu. Notkun á innsláttargáttinni er valfrjáls en óskað er eftir aðgangi að gáttinni á hljom-2@mms.is. Kynningarmyndband um innsláttargátt fyrir HLJÓM-2 má finna hér.