Fara beint í efnið

Leið til læsis – lesskimun fyrir 1. bekk - leiðbeiningar

Þar sem Skólagátt hefur verið lögð niður verða niðurstöður Leið til læsis – lesskimunar fyrir 1. bekk nú skráðar í Matsferil. Skráningarferlið hefur verið endurskoðað og gert skýrara og aðgengilegra fyrir notendur. Framsetning á niðurstöðum hefur einnig tekið breytingum og verður hún að mestu leyti í samræmi við framsetningu á niðurstöðum fyrir önnur stöðluð próf Matsferils. Í leiðbeiningunum eru notendur leiddir í gegnum nýtt skráningarfyrirkomulag og nýja framsetningu á niðurstöðum ásamt því að hnykkt er á því hvernig nota skal niðurstöður skimunarinnar. Tekið skal fram að sjálft matstækið og annað sem tilheyrir því verður ekki endurskoðað að sinni og því verður fyrirlögnin með sama sniði og undanfarin ár.

    Niðurstöður úr lesskimuninni

    Niðurstöður skimunarinnar í Matsferli eru birtar fyrir hvern prófhluta (málþroski, bókstafir og hljóð, hljóðkerfisvitund). Þær byggja á stöðu nemenda miðað við jafnaldra, eins og var í Skólagátt, en spá nú jafnframt fyrir um stöðu grunnþátta lestrar síðar á skólagöngu nemenda. Þessi tenging við önnur gögn síðar í lestrarferlinu (frammistöðu í lesfimi í 2. og 4. bekk við bókstafi og hljóð, og frammistöðu í lesskilningi í 4. bekk við málþroska) styrkir túlkun niðurstaðnanna.

    Nemendum er sem fyrr skipt í fjóra áhættuhópa út frá frammistöðu á hverjum prófhluta (mikil áhætta, áhætta, óvissa, utan áhættu) og helst túlkunin óbreytt. Gerðar hafa verið tvenns konar breytingar frá fyrri framsetningu á niðurstöðum sem ættu að hafa óveruleg áhrif á notkun kennara á prófunum. Fyrri breytingin, sem hefur meiri áhrif, felst í því að óvissuflokkurinn var stækkaður í samræmi við gögn síðustu ára. Þetta er gert til að grípa fleiri nemendur sem ekki hafa náð tökum á grunnþáttum lestrar fyrir 4. bekk. Síðari breytingin varðar heiti áhættuflokkanna, en nöfnunum „áhætta 1“ og „áhætta 2“ hefur verið breytt í „mikil áhætta“ og „áhætta“.