Leið til læsis – lesskimun fyrir 1. bekk - leiðbeiningar
Þjónustuaðili:
Þar sem Skólagátt hefur verið lögð niður verða niðurstöður Leið til læsis – lesskimunar fyrir 1. bekk nú skráðar í Matsferil. Skráningarferlið hefur verið endurskoðað og gert skýrara og aðgengilegra fyrir notendur. Framsetning á niðurstöðum hefur einnig tekið breytingum og verður hún að mestu leyti í samræmi við framsetningu á niðurstöðum fyrir önnur stöðluð próf Matsferils. Í leiðbeiningunum eru notendur leiddir í gegnum nýtt skráningarfyrirkomulag og nýja framsetningu á niðurstöðum ásamt því að hnykkt er á því hvernig nota skal niðurstöður skimunarinnar. Tekið skal fram að sjálft matstækið og annað sem tilheyrir því verður ekki endurskoðað að sinni og því verður fyrirlögnin með sama sniði og undanfarin ár.
Viðbrögð við niðurstöðum
Snemmtæk íhlutun, þar sem brugðist er strax við vanda ungra nemenda sem eru að taka sín fyrstu skref í formlegu lestrarnámi, er sérlega mikilvæg. Markviss stuðningur og þjálfun frá upphafi skólagöngu kemur í veg fyrir að nemendur þrói með sér vanda eða að hann ágerist. Með því að leggja eins styrkan grunn og hægt er frá upphafi skólagöngu er hægt að spara nemendum, forsjáraðilum og skólum mikinn tíma og fyrirhöfn.
Leið til læsis er hugsað sem fjölþætt stuðningskerfi þar sem fyrirlögn skimunarinnar er nauðsynlegt fyrsta skref svo hægt sé að bregðast við stöðu nemenda. Í Leið til læsis: Handbók má finna allar upplýsingar um hugmyndafræði stuðningskerfisins og þar finna kennarar jafnframt fræðilega umfjöllun um meginhugsmíðar skimunarinnar (málþroska, bókstafi og hljóð, hljóðkerfisvitund). Á blaðsíðu 35 í handbókinni er fjallað um skipulag kennslu út frá hugmyndafræði um stigskiptan stuðning (e. response to intervention) og í handbókinni má finna fjöldamargar aðferðir sem kennarar geta notað til að styrkja færni nemenda sinna á þeim þáttum sem prófið metur.
Til að auðvelda kennurum túlkun á niðurstöðum og ákvarða næstu skref hvað varðar kennslu og stuðning hafa túlkunarrammar verið útbúnir fyrir hvern prófhluta fyrir sig. Sameiginlegur skilningur og túlkun á niðurstöðum geta leitt til betri samhæfingar og nýtingar á stuðningi inni í bekk eða hjá stoðþjónustu. Hvort tveggja leiðir til betri þjónustu við nemendur.

