Tilkynning frá sóttvarnalækni og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra 18. ágúst 2020
Vegna umræðu um fjarlægðarmörk vill almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og sóttvarnalæknir árétta mikilvægi reglna og leiðbeininga um tvo metra á milli fólks.Tveggja metra reglan er sett þar sem hún er ein af grunnstoðum sýkingarvarna. Nánd á milli fólks eykur áhættuna á því að fá smit.