Fara beint í efnið

26. júní 2026

Vinnustaðanámssjóður auglýsir eftir umsóknum

Vinnustaðanámssjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til fyrirtækja sem taka á móti nemum í vinnustaðanámi og starfsþjálfun sem er skilgreindur hluti af starfsnámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla.

Umsóknarfrestur er til 10. nóvember 2026 kl. 15:00. Gert er ráð fyrir að opnað verði fyrir umsóknir í september.

Breytingar á umsóknarferli

Rafræn ferilbók forsenda styrkveitingar.

Vegna breytinga á umsóknarkerfi sjóðsins verður umsóknarferlið í tveimur skrefum.

Komin er sjálfvirk tenging milli umsóknarkerfis Vinnustaðanámssjóðs og rafrænnar ferilbókar þannig að kerfið staðfestir hvort vinnustaðanámssamningur sé í gildi. Umsókn er ekki gild ef undirritaður námssamningur liggur ekki fyrir í INNU.

Sótt verður um styrki vegna vinnustaðanáms á 12 mánaða tímabilinu nóvember 2025 til október 2026.

Mælt er með að vinnustaðir undirbúi umsóknir tímanlega

Til að einfalda umsóknarferlið er fyrirtækjum bent á að:

• ganga úr skugga um að vinnustaðanámssamningar í rafrænni ferilbók séu fullfrágengnir,

• stofna umsókn og skrá nemendur þegar opnað verður fyrir umsóknir,

• safna saman nauðsynlegum fylgigögnum, svo sem launaseðlum eða öðrum vottorðum, sem staðfesta umsótt vinnustaðanám, áður en umsóknarfrestur rennur út.

Um Vinnustaðanámssjóð

Markmið Vinnustaðanámssjóðs er að hvetja fyrirtæki til að taka við nemendum í vinnustaðanám og gera þeim kleift að ljúka þeim verklega hluta starfsnáms sem krafist er samkvæmt námskrá framhaldsskóla.

Nánari upplýsingar:
Tölvupóstfang: vinnustadanamssjodur@rannis.is
Sími: 515 5833/ 515 5843