Vinnustaðanámssjóður
Vinnustaðanámssjóður veitir styrki til fyrirtækja til að taka við nemendum í iðnnámi eða öðru námi á framhaldsskólastigi þar sem þjálfun er skilgreindur hluti námsins. Um er að ræða löggiltar iðngreinar og heilbrigðis-, félags- og umönnunargreinar.
Markmið styrkja til vinnustaðanáms eða starfsþjálfunar er að hvetja fyrirtæki til að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla.
Styrkir til vinnustaðanáms eru veittir á grundvelli ákvörðunar um framlög á fjárlögum hvers árs. Fjárhæð styrkja ræðst því af framlögum á fjárlögum til málaflokksins og eftirspurn.
Auglýst er eftir umsóknum einu sinni á ári. Umsóknarfrestur er í nóvember ár hvert.
Sækja skal um rafrænt í gegnum umsóknarkerfi Rannís - Mínar síður.
Umsóknum skal skila á rafrænu formi í gegnum umsóknarkerfi Rannís (Mínar síður Rannís). Ekki er tekið við umsóknum á öðru formi.
Tekið er á móti fyrirspurnum í netfanginu: vinnustadanamssjodur@rannis.is
Umsjóðnarmaður sjóðsins er Andrés Pétursson, sími: 515 5833 eða 515 5843
Rannís hefur umsjón með Vinnustaðanámssjóði fyrir hönd mennta- og barnamálaráðuneytis.
Þjónustuaðili
Rannsóknamiðstöð Íslands