Fara beint í efnið

Vinnustaðanámssjóður

Leiðbeiningar vegna umsókna

Leiðbeiningar og fylgigögn

  • Stofnanir og fyrirtæki senda inn eina umsókn. Hún er tvískipt, þar sem annarsvegar eru upplýsingar um fyrirtækið/stofnunina sem sækir um og hinsvegar upplýsingar um fjölda nema og fjölda vikna í hverri námsgrein fyrir sig. 

  • Styrktímabilið er frá 1. nóvember til 31. október ár hvert. 

  • Fjárhæð styrkja ræðst af framlögum á fjárlögum til málaflokksins og eftirspurn.

  • Veittir eru styrkir til þeirra sem uppfylla skilyrði og fer upphæð eftir eftirspurn og fjölda umsókna.

  • Hámarks vikufjöldi fyrir hvern nema eru 48 vikur á ári.

  • Hverjum nema skal fylgja launamiði, síðasti launaseðill ársins eða annars konar gögn sem staðfesta að umsóttar vikur hafi verið unnar á viðkomandi tímabili.

  • Hverjum nema skal fylgja undirritaður vinnustaðanámssamningur sem stofnaður hefur verið í rafrænni ferilbók nemandans.

Umsóknarkerfi

  • Til að nálgast umsóknarformið þarf að tengjast umsóknarkerfi Rannís - Mínar síður með rafrænum skilríkjum. Ef notandi er erlendis gæti þurft að nota auðkennisappið frekar en auðkenningu gegnum símanúmer.

  • Leiðbeiningar um Mínar síður Rannís.

  • Ekki er nauðsynlegt að umsækjandi sé innskráður notandi í umsóknarkerfinu en það er heppilegt ef hægt er. Einstaklingur getur verið innskráður notandi í umsóknarkerfi en tilgreint annan umsækjanda í umsókn. 

  • Eftir að umsókn er send sést hún undir „Umsóknir->Innsendar” á mínum síðum þess notanda sem sendi.