Laus störf hjá Rannís
Rannís er líflegur vinnustaður með um 70 sérfræðingum. Hlutverk Rannís er m.a. að veita stuðning við rannsóknir, nýsköpun, menntun og menningu og styðja þekkingarsamfélagið með rekstri samkeppnissjóða, aðstoð og kynningu á alþjóðlegum sóknarfærum og samstarfsmöguleikum.
Skrifstofustarf hjá IASC
Rannís óskar eftir að ráða í 50% skrifstofustarf hjá Alþjóðlegu norðurskautsvísindanefndinni (IASC) sem hýst er á skrifstofu Rannís í Háskólanum á Akureyri. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri IASC.Rannís - The Icelandic
Helstu verkefni og ábyrgð:
Starfið felur í sér umsjón með fjármálum IASC og önnur verkefni á skrifstofu IASC, s.s. stuðning við ýmis fjármögnunarverkefni og nefndir IASC í umboði framkvæmdastjóra.
IASC Administrative Officer
Centre for Research is seeking an Administrative Officer for a part-time (50%) position with the International Arctic Science Committee (IASC) Secretariat which is hosted by Rannís at the University of Akureyri.
Main tasks and responsibilities:
The job primarily involves managing the finances of IASC and other administrative tasks within the IASC Secretariat, supporting the various IASC-funded projects, as well as supporting other IASC committees as needed under the authority of the Executive Secretary of IASC.
Meiri upplýsingar - More information at Starfatorg
Laus staða sérfræðings á Mennta- og menningarsviði
Alþjóðlegt menntasamstarf
Hefur þú áhuga á menntamálum og vilt stuðla að árangursríku evrópsku og norrænu menntasamstarfi? Rannís óskar eftir sérfræðingi í fullt starf á mennta- og menningarsvið.
Helstu verkefni og ábyrgð
Um er að ræða umsjón með eTwinning, rafrænu skólasamfélagi sem stuðlar að samstarfi milli íslenskra og evrópskra kennara og skólafólks og Nordplus Junior sem er skólahluti Nordplus menntaáætlunar Norrænu ráðherranefndarinnar. Starfið felur í sér umsýslu umsókna og verkefna, gerð vinnuáætlana og skýrslna auk þátttöku í kynningarmálum og alþjóðlegu samstarfi.
Umsóknarfrestur er liðinn
Umsóknarfrestur um starfið er liðinn og ráðningarferli er í gangi. Ekki er lengur tekið á móti umsóknum.
Við þökkum öllum þeim sem sýndu starfinu áhuga og sendu inn umsókn.
Við hvetjum áhugasama til að fylgjast með nýjum atvinnutækifærum á vefsíðunni okkar.