Nordplus
Menntaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar
Markmið áætlunarinnar er að efla samstarf og gæði í menntun á Norðurlöndum og í Eystrasaltslöndum. Umsóknir skulu falla að almennum markmiðum Nordplus og einni af undiráætlunum þess.
Rannís er landskrifstofa Nordplus á Íslandi og veitir upplýsingar og ráðgjöf um allar Nordplus undiráætlanir.
Rannís hefur einnig umsjón með undiráætluninni Nordplus norræn tungumál og sér um afgreiðslu umsókna og greiðslu styrkja innan hennar.
Nordplus samanstendur af fimm undiráætlunum sem ná yfir öll menntunarstig og menntageira:
Styrkir sem Nordplus veitir
Nordplus
Rannsóknamiðstöð Íslands
Samstarfs- og þróunarverkefni háskóla
Nordplus háskólastig styrkir samstarfsnet háskóla á Norðurlöndum og í Eystrasaltslöndum og verkefni þeirra.
Sjá lýsingu
Alþjóðlegt, Nám og kennsla
Nordplus
Rannsóknamiðstöð Íslands
Samstarfs- og þróunarverkefni í fullorðinsfræðslu
Nordplus fullorðinsfræðsla styður verkefni og námsheimsóknir á sviði fullorðinsfræðslu, starfsþjálfunar og óformlegrar menntunar á Norðurlöndum og í Eystrasaltslöndum.
Sjá lýsingu
Alþjóðlegt, Starfs- og símenntun, Nám og kennsla
Nordplus
Rannsóknamiðstöð Íslands
Samstarfs- og þróunarverkefni skóla
Nordplus Junior styrkir samstarf skóla og annarra aðila á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi á Norðurlöndum og í Eystrasaltslöndum.
Sjá lýsingu
Alþjóðlegt, Starfs- og símenntun, Nám og kennsla
Nordplus
Rannsóknamiðstöð Íslands
Samstarfs- og þróunarverkefni um norræn tungumál
Nordplus norræn tungumál styður samstarf og verkefni sem efla norræn tungumál, gagnkvæman málskilning og þekkingu á norrænni menningu í Norðurlöndum og Eystrasaltslöndum.
Sjá lýsingu
Alþjóðlegt, Nám og kennsla, Nýsköpun
Nordplus
Rannsóknamiðstöð Íslands
Samstarfs- og þróunarverkefni þvert á menntunarstig og menntageira
Nordplus Horizontal styrkir samstarfsverkefni þar sem aðilar úr ólíkum hlutum menntakerfisins vinna saman á Norðurlöndum og í Eystrasaltslöndum.
Sjá lýsingu
Alþjóðlegt, Nám og kennsla, Nýsköpun

Sótt er um í allar undiráætlanir Nordplus gegnum umsóknarkerfi Nordplus.