Fara beint í efnið

Sjóður

Nordplus

Staða

Lokað fyrir umsóknir

Sjá lýsingu

Styrkjaflokkun

Alþjóðlegt, Nám og kennsla, Nýsköpun

Tegund

Fjármögnun

Þjónustuaðili

Rannsóknamið­stöð Íslands

Samstarfs- og þróunarverkefni um norræn tungumál

Nordplus norræn tungumál styður samstarf og verkefni sem efla norræn tungumál, gagnkvæman málskilning og þekkingu á norrænni menningu í Norðurlöndum og Eystrasaltslöndum.

Sjóður

Nordplus

Staða

Lokað fyrir umsóknir

Sjá lýsingu

Styrkjaflokkun

Alþjóðlegt, Nám og kennsla, Nýsköpun

Tegund

Fjármögnun

Samstarfs- og þróunarverkefni um norræn tungumál

Lokað fyrir umsóknir / Sjá lýsingu

Umsóknarfrestur er fyrsta virka dag í febrúar á hverju ári.

Hægt að sækja um styrki fyrir allar tegundir verkefna fyrir umsóknarfrestinn í febrúar. Einnig er sérstakur umsóknarfrestur fyrsta virka dag í október fyrir undirbúningsheimsóknir.

Hægt er að sækja um styrki fyrir:

  • samstarfsverkefni

  • samstarfsnet

  • undirbúningsheimsóknir

  • norræn tungumálanámskeið

Verkefni eru unnin í samstarfi milli aðila í tveimur eða fleiri þátttökulöndum Nordplus. Fyrir norræn tungumálanámskeið þarf samstarf að minnsta kosti þriggja aðila.

Markmiðið er að efla samstarf um norræn tungumál og styrkja norrænan mál- og menningarskilning.

Hverjir geta sótt um?

Stofnanir, samtök og aðrir aðilar í þátttökulöndum Nordplus geta sótt um styrki.

Umsækjendur skulu starfa að kennslu, miðlun eða eflingu norrænna tungumála eða norrænna minnihlutatungumála. Einstaklingar geta ekki sótt um styrki beint.

Hvernig er sótt um?

Sótt er um gegnum umsóknarkerfi Nordplus.

Umsóknarleiðbeiningar eru á aðalvef Nordplus (á ensku).

Svör við spurningum

Nánari upplýsingar og skilyrði eru á aðalvef Nordplus (á ensku).

Fyrirspurnir má senda á: nordplus@rannis.is

Þjónustuaðili

Rannsóknamið­stöð Íslands