Fara beint í efnið

Nordplus

Nordplus norræn tungumál

Nordplus norræn tungumál styrkir samstarf og verkefni sem efla norræn tungumál, gagnkvæman málskilning og þekkingu á norrænni menningu í Norðurlöndum og Eystrasaltslöndum.

Verkefni geta meðal annars falist í þróun kennsluefnis, rannsóknum, fræðslu, námskeiðum, vinnustofum, ráðstefnum og annarri miðlun sem stuðlar að aukinni þekkingu á norrænum tungumálum og menningu.

Stofnanir, samtök og aðrir aðilar sem starfa að kennslu, miðlun eða eflingu norrænna tungumála og norrænna minnihlutatungumála á Norðurlöndum og í Eystrasaltslöndum geta sótt um styrki úr áætluninni.

Stutt samantekt um tækifæri Nordplus norræn tungumál á Styrkjatorgi.

Nánari upplýsingar og skilyrði á aðalvef Nordplus (á ensku).

Rannís hefur umsjón með Nordplus norræn tungumál og sér um afgreiðslu umsókna og greiðslu styrkja. Fyrirspurnir um umsýslu verkefna má senda á nordplus@rannis.is.

Nordplus

Hafðu samband

Símanúmer Rannís: +354 515 5800

nordplus@rannis.is

Vefur áætl­un­ar­innar

nordplusonline.org

Hlut­verk Rannís

Rannís er landskrifstofa Nordplus á Íslandi. Rannís veitir upplýsingar og ráðgjöf um allar undiráætlanir Nordplus og sér um umsýslu Nordplus Sprog.