Nordplus
Nordplus undirbúningsheimsóknir
Undirbúningsheimsóknir eru góð leið fyrir íslenska skóla, fræðsluaðila og aðrar stofnanir til að þróa hugmynd að norrænu eða norrænu-baltnesku samstarfsverkefni. Heimsóknirnar gera samstarfsaðilum kleift að hittast, útfæra verkefnið og undirbúa sameiginlega umsókn.
Hægt er að sækja um styrk til undirbúningsheimsókna innan:
Nordplus Junior, fyrir leik-, grunn- og framhaldsskólastig
Nordplus Voksen, fyrir fullorðinsfræðslu
Nordplus Norrænu tungumálaáætlunarinnar
Innan Nordplus Junior er einnig hægt að sækja um styrk til námsheimsókna. Þær eru ætlaðar kennurum, skólastjórnendum, öðru starfsfólki skóla og starfsfólki fræðsluyfirvalda sem vilja afla nýrrar þekkingar og reynslu sem nýtist við þróun skólastarfs. Námsheimsókn þarf að byggja á skýrri þróunarþörf innan þátttökustofnunar.
Nánari upplýsingar um undirbúningsheimsóknir og námsheimsóknir er að finna á vef Nordplus.