Fara beint í efnið

Sjóður

Nordplus

Staða

Lokað fyrir umsóknir

Sjá lýsingu

Styrkjaflokkun

Alþjóðlegt, Nám og kennsla

Tegund

Fjármögnun

Þjónustuaðili

Rannsóknamið­stöð Íslands

Samstarfs- og þróunarverkefni háskóla

Nordplus háskólastig styrkir samstarfsnet háskóla á Norðurlöndum og í Eystrasaltslöndum og verkefni þeirra.

Sjóður

Nordplus

Staða

Lokað fyrir umsóknir

Sjá lýsingu

Styrkjaflokkun

Alþjóðlegt, Nám og kennsla

Tegund

Fjármögnun

Samstarfs- og þróunarverkefni háskóla

Lokað fyrir umsóknir / Sjá lýsingu

Umsóknarfrestur er fyrsta virka dag í febrúar á hverju ári.

Háskólar geta sótt um styrki fyrir:

  • nemenda- og kennaraskipti

  • hraðnámskeið

  • þróunarverkefni

  • og annað menntasamstarf á grunn- eða meistaranámsstigi

Markmiðið er að efla menntasamstarf milli háskóla á Norðurlöndum og í Eystrasaltslöndum. Einnig er hægt að vinna með öðrum samstarfsaðilum, til dæmis fyrirtækjum.

Hverjir geta sótt um?

Háskólar og aðrar viðurkenndar háskólastofnanir í þátttökulöndum Nordplus geta sótt um styrki.

Einstaklingar geta ekki sótt um styrki beint, en geta tekið þátt í verkefnum í gegnum sína heimastofnun.

Hvernig er sótt um?

Sótt er um gegnum umsóknarkerfi Nordplus.

Umsóknarleiðbeiningar eru á aðalvef Nordplus (á ensku).

Svör við spurningum

Nánari upplýsingar og skilyrði eru á aðalvef Nordplus (á ensku).

Fyrirspurnir má senda á: nordplus@rannis.is

Þjónustuaðili

Rannsóknamið­stöð Íslands