Fara beint í efnið

Sjóður

Nordplus

Staða

Opið fyrir umsóknir

Sjá lýsingu

Styrkjaflokkun

Alþjóðlegt, Starfs- og símenntun, Nám og kennsla

Tegund

Fjármögnun

Þjónustuaðili

Rannsóknamið­stöð Íslands

Undirbúningsheimsóknir Nordplus

Tilgangurinn með undirbúningsstyrkjum er að auðvelda leit að samstarfsaðilum og undirbúning og þróun umsókna í Nordplus.

Sjóður

Nordplus

Staða

Opið fyrir umsóknir

Sjá lýsingu

Styrkjaflokkun

Alþjóðlegt, Starfs- og símenntun, Nám og kennsla

Tegund

Fjármögnun

Undirbúningsheimsóknir Nordplus

Opið fyrir umsóknir / Sjá lýsingu

Umsóknarfrestur rennur út 1. október klukkan 21:59 að íslenskum tíma (23:59 CET)

Undirbúningsheimsóknir eru góð leið fyrir íslenska skóla, fræðsluaðila og aðrar stofnanir til að þróa hugmynd að norrænu eða norrænu-baltnesku samstarfsverkefni. Heimsóknirnar gera samstarfsaðilum kleift að hittast, útfæra verkefnið og undirbúa sameiginlega umsókn.

Hægt er að sækja um styrk til undirbúningsheimsókna innan:

  • Nordplus Junior, fyrir leik-, grunn- og framhaldsskólastig

  • Nordplus Voksen, fyrir fullorðinsfræðslu

  • Nordplus Norrænu tungumálaáætlunarinnar

Innan Nordplus Junior er einnig hægt að sækja um styrk til námsheimsókna. Þær eru ætlaðar kennurum, skólastjórnendum, öðru starfsfólki skóla og starfsfólki fræðsluyfirvalda sem vilja afla nýrrar þekkingar og reynslu sem nýtist við þróun skólastarfs. Námsheimsókn þarf að byggja á skýrri þróunarþörf innan þátttökustofnunar.

Nánari upplýsingar um undirbúningsheimsóknir og námsheimsóknir er að finna á vef Nordplus.

Hverjir geta sótt um?

Stofnanir, samtök, skólar og aðrir aðilar í þátttökulöndum Nordplus geta sótt um styrki til undirbúningsheimsókna.

Umsækjendur þurfa að starfa á því sviði sem viðkomandi undiráætlun nær til, svo sem í:

  • formlegu skólastarfi,

  • fullorðinsfræðslu,

  • starfsþjálfun,

  • óformlegri menntun

  • eða við kennslu, miðlun og eflingu norrænna tungumála og norrænna minnihlutatungumála.

Einstaklingar geta ekki sótt um styrki.

Hvernig er sótt um?

Sótt er um gegnum umsóknarkerfi Nordplus.

Umsóknarleiðbeiningar eru á aðalvef Nordplus (á ensku).

Svör við spurningum

Nánari upplýsingar og skilyrði eru á aðalsíðu Nordplus (á ensku).

Fyrirspurnir má senda á: nordplus@rannis.is

Þjónustuaðili

Rannsóknamið­stöð Íslands