Sjóður
Nordplus
Staða
Lokað fyrir umsóknir
Sjá lýsingu
Styrkjaflokkun
Alþjóðlegt, Starfs- og símenntun, Nám og kennsla
Tegund
Fjármögnun
Þjónustuaðili
Rannsóknamiðstöð Íslands
Samstarfs- og þróunarverkefni í fullorðinsfræðslu
Nordplus fullorðinsfræðsla styður verkefni og námsheimsóknir á sviði fullorðinsfræðslu, starfsþjálfunar og óformlegrar menntunar á Norðurlöndum og í Eystrasaltslöndum.
Sjóður
Nordplus
Staða
Lokað fyrir umsóknir
Sjá lýsingu
Styrkjaflokkun
Alþjóðlegt, Starfs- og símenntun, Nám og kennsla
Tegund
Fjármögnun
Samstarfs- og þróunarverkefni í fullorðinsfræðslu
Lokað fyrir umsóknir / Sjá lýsingu
Umsóknarfrestur er fyrsta virka dag í febrúar á hverju ári.
Hægt að sækja um styrki fyrir allar tegundir verkefna fyrir umsóknarfrestinn í febrúar. Einnig er sérstakur umsóknarfrestur fyrsta virka dag í október fyrir undirbúningsheimsóknir.
Hægt er að sækja um styrki fyrir:
námsheimsóknir starfsmanna og nema
þematengd samstarfsnet
úttektir og greiningu
þróunarverkefni
undirbúningsheimsóknir
Verkefni eru unnin í samstarfi milli aðila í tveimur eða fleiri þátttökulöndum Nordplus.
Markmiðið er að efla þróun, nýsköpun og alþjóðlegt samstarf í fullorðinsfræðslu á Norðurlöndum og í Eystrasaltslöndum.
Hverjir geta sótt um?
Stofnanir, samtök og aðrir aðilar í þátttökulöndum Nordplus geta sótt um styrki.
Umsækjendur skulu starfa á sviði fullorðinsfræðslu, starfsþjálfunar eða óformlegrar menntunar. Einstaklingar geta ekki sótt um styrki beint.
Hvernig er sótt um?
Sótt er um gegnum umsóknarkerfi Nordplus.
Umsóknarleiðbeiningar eru á aðalvef Nordplus (á ensku).
Svör við spurningum
Nánari upplýsingar og skilyrði eru á aðalvef Nordplus (á ensku).
Fyrirspurnir má senda á: nordplus@rannis.is
Þjónustuaðili