Alþjóðlegt vísindasamstarf á norðurslóðum
Rannís annast samstarf og upplýsingagjöf um alþjóðlegt vísindasamstarf á norðurslóðum og þátttöku Íslands í alþjóðlegu samstarfi á þessu sviði.
Rannís hýsir skrifstofu Alþjóðlegu norðurskautsvísindanefndarinnar (IASC) í Borgum, rannsókna- og nýsköpunarhúsi á lóð Háskólans á Akureyri. Þar starfa einnig stofnanir sem sérhæfa sig í rannsóknum, vöktun og miðlun upplýsinga um málefni norðurslóða. Samnýting aðstöðu skapar góðar forsendur fyrir samstarfi og tengslamyndun innan öflugs norðurslóðasamfélags.
Alþjóðlega norðurskautsvísindanefndin (IASC)
Alþjóðlega norðurskautsvísindanefndin (IASC) eru alþjóðleg samtök sem stuðla að og samræma rannsóknir á norðurslóðum. Markmið IASC er að efla alþjóðlegt vísindasamstarf, styðja framúrskarandi rannsóknir og auka skilning á norðurslóðum og mikilvægi þeirra í hnattrænu samhengi.Ísland á fulltrúa í vinnuhópum IASC sem fjalla um ólík svið norðurslóðarannsókna og stuðla að samstarfi vísindafólks þvert á lönd og fræðigreinar.
Meginstarfsemi nefndarinnar fer fram í fimm vinnuhópum, sem skipulagðir eru út frá ólíkum viðfangsefnum: Landræn kerfi (Terrestrial), freðhvolf (Cryosphere), hafvísindi (Marine), mann- og félagsvísindi (Human & Social) og gufuhvolf (Atmosphere). Að auki veitir IASC sérstakan stuðning til verkefna sem stuðla að samstarfi þvert á vinnuhópana.
Fulltrúar vinnuhópa IASC
Íslenskir vísindamenn taka virkan þátt í starfi allra þessara hópa og eru fulltrúar Íslands þannig skipaðir:
Nafn vinnuhóps | Fulltrúar Íslands |
Freðhvolf | Þorsteinn Þorsteinsson, sérfræðingur á sviði jöklarannsókna, Veðurstofa Íslands |
Gufuhvolf | Guðrún Nína Petersen, veðurfræðingur, Veðurstofa Íslands |
Hafvísindi | Anna Heiða Ólafsdóttir, fiskifræðingur, Hafrannsóknastofnun |
Landvistkerfi | Bjarni K. Kristjánsson, prófessor Háskólinn á Hólum |
Mann- og félagsvísindi | Catherine Chambers, fagstjóri, Háskólasetri Vestfjarða |
SAON | Jórunn Harðardóttir, rannsóknastjóri, Veðurstofu Íslands |
Stjórn IASC (IASC Council)
Egill Þór Níelsson, sérfræðingur, Rannís
Samningur um vísindasamstarf á norðurslóðum
Ísland er aðili að samningi um eflingu alþjóðlegs vísindasamstarfs á norðurslóðum. Markmið samningsins er að auðvelda aðgengi vísindamanna að rannsóknarsvæðum, gögnum, innviðum og rannsóknaraðstöðu og þannig styrkja rannsóknir og samstarf á svæðinu.
Utanríkisráðherra Íslands og utanríkisráðherrar sjö annarra Norðurskautsríkja undirrituðu samning um samstarfið í Fairbanks í Alaska 11. maí 2017.
Samingurinn um alþjóðlegt vísindasamstarf á norðurslóðum:
Á kortinu má sjá til hvaða landsvæða samningurinn nær til:
