Fara beint í efnið

Staða

Opið fyrir umsóknir

Frestur til 10. nóvember, kl. 15:00

Umsóknartímabil

22.09.2026 - 10.11.2026

Styrkjaflokkun

Innlent, Nám og kennsla, Starfs- og símenntun

Tegund

Fjármögnun

Miðast við íslenskan tíma

Þjónustuaðili

Rannsóknamið­stöð Íslands

Styrkir til vinnustaðanáms eða starfsþjálfunar

Vinnustaðanámssjóður veitir styrki til fyrirtækja til að taka við nemendum í iðnnámi eða öðru námi á framhaldsskólastigi þar sem þjálfun er skilgreindur hluti námsins.

Staða

Opið fyrir umsóknir

Frestur til 10. nóvember, kl. 15:00

Umsóknartímabil

22.09.2026 - 10.11.2026

Styrkjaflokkun

Innlent, Nám og kennsla, Starfs- og símenntun

Tegund

Fjármögnun

Miðast við íslenskan tíma

Styrkir til vinnustaðanáms eða starfsþjálfunar

Opið fyrir umsóknir / Frestur til 10. nóvember, kl. 15:00

Umsóknarfrestur kl. 15:00 að íslenskum tíma.

Markmið styrkja til vinnustaðanáms eða starfsþjálfunar er að hvetja fyrirtæki og stofnanir til að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla. 

Sótt er um fyrir tímabilið 1. nóvember 2025 til 31. október 2026.

  • Styrkur fyrir hvern nema er veittur að hámarki til 48 vikna fyrir árið allt, þó aldrei lengur en sem nemur þeim heildartíma sem krafist er í vinnustaðanámi fyrir viðkomandi nám.

  • Fjárhæð styrkja ræðst af framlögum á fjárlögum til málaflokksins og eftirspurn.

  • Veittir eru styrkir til þeirra sem uppfylla skilyrði og fer upphæð eftir eftirspurn og fjölda umsókna.

  • Hámarks vikufjöldi fyrir hvern nema eru 48 vikur á ári.

  • Hverjum nema skal fylgja launamiði, síðasti launaseðill ársins eða annars konar gögn sem staðfesta að umsóttar vikur hafi verið unnar á viðkomandi tímabili.

  • Hverjum nema skal fylgja undirritaður vinnustaðanámssamningur sem stofnaður hefur verið í rafrænni ferilbók nemandans.

Hverjir geta sótt um?

Fyrirtæki og stofnanir sem uppfylla almenn skilyrði gildandi reglugerðar um námssamninga og starfsþjálfun um hæfi til þess að annast nemendur í starfsnámi, og sem hafa á að skipa hæfum tilsjónaraðila sem ber ábyrgð á námi nemanda á vinnustað.  

Hvernig er sótt um?

  • Til að nálgast umsóknarformið þarf að tengjast umsóknarkerfi Rannís - Mínar síður með rafrænum skilríkjum. Ef notandi er erlendis gæti þurft að nota auðkennisappið frekar en auðkenningu gegnum símanúmer.

  • Leiðbeiningar um Mínar síður Rannís.

  • Ekki er nauðsynlegt að umsækjandi sé innskráður notandi í umsóknarkerfinu en það er heppilegt ef hægt er. Einstaklingur getur verið innskráður notandi í umsóknarkerfi en tilgreint annan umsækjanda í umsókn. 

  • Eftir að umsókn er send sést hún undir „Umsóknir->Innsendar” á mínum síðum þess notanda sem sendi.

  • Umsókn má vera á íslensku eða ensku.

Svör við spurningum

Tekið er á móti fyrirspurnum í netfanginu vinnustadanamssjodur@rannis.is eða í síma 515 5539 eða 515 5843.

Þjónustuaðili

Rannsóknamið­stöð Íslands