24. september 2026
24. september 2026
Tölur um sjálfsvíg árið 2025
Embætti landlæknis hefur lokið samantekt á tölum um sjálfsvíg fyrir árið 2025 og birt tölur þess efnis. Samhliða hefur tölfræði um allar dánarorsakir verið uppfærð.

Árið 2025 voru sjálfsvíg 43 talsins eða 11,0 á hverja 100.000 íbúa.
Vert er að hafa í huga að vegna fámennis þjóðarinnar geta litlar breytingar á fjölda valdið nokkrum sveiflum í dánartíðni milli ára. Því er mikilvægt að túlka ekki tölur fyrir eitt ár sem vísbendingu um fjölgun eða fækkun sjálfsvíga heldur horfa frekar á lengra tímabil.
Ef horft er til síðustu fimm ára, þ.e. tímabilið 2021–2025, voru sjálfsvíg að meðaltali 42 á ári eða 11,1 á hverja 100.000 íbúa.
Mælaborð og úrvinnsla gagna
Opinber tölfræði um sjálfsvíg byggir á skráðum upplýsingum á dánarvottorðum einstaklinga með lögheimili á Íslandi við andlát, sem skráðar eru í dánarmeinaskrá landlæknis. Fjöldi sjálfsvíga tekur til andláta þar sem undirliggjandi dánarorsök á dánarvottorði er skráð sem vísvitandi sjálfsskaði (ICD-10 kóðar: X60–X84).
Ítarlegar tölur um sjálfsvíg má finna á vef embættis landlæknis, bæði í töflum og í gagnvirku mælaborði.
Aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi 2025–2030
Hjá Lífsbrú – miðstöð sjálfsvígsforvarna hjá embætti landlæknis er haldið utan um vinnu við sjálfsvígsforvarnir á Íslandi. Unnið er eftir Aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi 2025–2030. Áætlunin skiptist í sjö kafla og inniheldur 26 aðgerðir sem miða að því að efla sjálfsvígsforvarnir, bæta stuðning og meðferð og styrkja þekkingu og vitund um sjálfsvíg og sjálfsvígsforvarnir. Fjórum aðgerðum er lokið, unnið er að 13 aðgerðum og 9 aðgerðir eru ekki hafnar.
Hægt er að fylgjast með stöðu og framvindu einstakra aðgerða í gagnvirku mælaborði aðgerðaáætlunarinnar.
Sjálfsvígsforvarnir eru sameiginlegt verkefni margra ráðuneyta, stofnana og félagasamtaka. Tölur um sjálfsvíg veita mikilvægar upplýsingar. Fólk á öllum aldri og af öllum kynjum fellur fyrir eigin hendi. Það er jafnframt mikilvægt að horfa til lengri tíma og halda áfram markvissum aðgerðum sem stuðla að fækkun sjálfsvíga á Íslandi.
Í Gulum september er lögð áhersla á að hafa kærleika, aðgát og umhyggju að leiðarljósi. Við getum öll lagt okkar af mörkum með því að vera vakandi fyrir líðan fólks í kringum okkur, taka eftir breytingum, hlusta og þora að spyrja. Stundum getur lítið samtal skipt miklu máli – og það er alltaf í lagi að leita sér hjálpar.
Frekari upplýsingar
Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir, verkefnastjóri sjálfsvígsforvarna
gudrun.j.gudlaugsdottir@landlaeknir.is
Jón Óskar Guðlaugsson, verkefnastjóri heilbrigðisupplýsingasviði
Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á
Píeta samtökin s. 1799
Hjálparsíma Rauða krossins s.1717 og netspjallið 1717.is
Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar s. 1700, og netspjallið heilsuvera.is
Í neyð hringið í 112
Fyrir stuðning eftir missi í sjálfsvígi er bent á
Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar, s. 1700, og netspjallið heilsuvera.is
Sorgarmiðstöð, s. 551-4141 og sorgarmidstod@sorgarmidstod.is
Píeta samtökin s.1799
Í neyð hringið í 112