31. mars 2023
31. mars 2023
Snæfellsbær gerist Heilsueflandi samfélag
Snæfellsbær varð formlega aðili að Heilsueflandi samfélagi (HSAM) þann 20. mars 2023.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/1UERYdmbGMyuABUoUsbLOS/86d9cba8d92531616629b41a6d211feb/Kristinn_b__jarstj__ri_og_Alma_landl__knir_handsala_HSAMsamninginn.jpg?w=50&fm=webp&q=80)
![Snæfellsbær gerist HSAM. Kristinn bæjarstjóri og Alma landlæknir handsala samninginn](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/1UERYdmbGMyuABUoUsbLOS/86d9cba8d92531616629b41a6d211feb/Kristinn_b__jarstj__ri_og_Alma_landl__knir_handsala_HSAMsamninginn.jpg?w=774&fm=webp&q=80)
Snæfellsbær varð formlega aðili að Heilsueflandi samfélagi (HSAM) þann 20. mars síðastliðinn þegar Kristinn Jónasson bæjarstjóri og Alma D. Möller landlæknir undirrituðu samning þess efnis í Ráðhúsi Snæfellsbæjar á Hellissandi. Viðstaddir voru aðilar úr bæjarstjórn og HSAM stýrihópi sveitarfélagsins þar sem eiga fulltrúa grunnskóli og leikskóli Snæfellsbæjar, íþrótta- og æskulýðsnefnd, velferðarnefnd og atvinnuveganefnd. Kristfríður Rós Stefánsdóttir íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Snæfellsbæjar er HSAM tengiliður sveitarfélagsins.
Meginmarkmið Heilsueflandi samfélags er að styðja samfélög í að vinna með markvissum hætti að því að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa. Í slíku samfélagi er heilsa og líðan íbúa í fyrirrúmi í stefnumótun og aðgerðum á öllum sviðum. Starf Heilsueflandi leik-, grunn- og framhaldsskóla, Heilsueflandi vinnustaða og heilsuefling eldri borgara er mikilvægur liður í starfi Heilsueflandi samfélags. Með innleiðingu Heilsueflandi samfélags vinna sveitarfélög meðal annars að innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.
Snæfellsbær er 40. sveitarfélagið sem gerist Heilsueflandi samfélag og búa nú um 95,3% landsmanna í slíku samfélagi.
Nánar um Heilsueflandi samfélag
Nánar um Lýðheilsuvísa
Nánar um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna
Gígja Gunnarsdóttir, verkefnastjóri Heilsueflandi samfélags
gigja.gunnarsdottir@landlaeknir.is