Heilsueflandi samfélag
Heilsueflandi samfélag er heildræn nálgun sem embætti landlæknis vinnur að í samstarfi og samráði við sveitarfélög, opinberar stofnanir, frjáls félagasamtök o.fl.
Af hverju Heilsueflandi samfélag?
Heilsa er líkamleg, andleg og félagsleg vellíðan en ekki einungis það að vera laus við sjúkdóma og örorku (WHO, 1948). Lýðheilsa felur í sér markvissar aðgerðir hins opinbera og annarra sem miða að því að bæta heilsu, líðan og lífsgæði þjóða og þjóðfélagshópa (WHO, 1998).
Fólk lifir lengur á meðan hlutfall fæðinga minnkar sem felur í sér tækifæri en einnig ýmsar áskoranir fyrir samfélög. Stjórnvöld verða að velja hagkvæmar leiðir til að viðhalda og bæta heilsu og færni fólks á öllum æviskeiðum. Markvisst lýðheilsustarf, sem sem byggir á bestu þekkingu á hverjum tíma hefur fjölþætt gildi fyrir ríki, sveitarfélög, einstaklinga og aðra hagsmunaaðila. Ef vel tekst til við innleiðingu Heilsueflandi samfélags má vænta að andleg, líkamleg og félagsleg heilsa og vellíðan íbúa verði betri en annars, jöfnuður verði meiri sem og öryggi og lífsgæði almennt.
Meginmarkmið Heilsueflandi samfélags er að styðja samfélög í að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa.
Leiðarljós Heilsueflandi samfélags:
Virk þátttaka samfélagsins í heild, þ.m.t. hagsmunaaðila úr öllum geirum.
Starfið byggir á bestu þekkingu og reynslu á hverjum tíma.
Valda ekki skaða (do no harm)
Jöfnuður til heilsu með almennum aðgerðum og aðgerðum sem taka mið af þörfum viðkvæmra hópa.
Sjálfbærni, leggja áherslu á að skipuleggja starf og árangur til lengri tíma litið.
Í Heilsueflandi samfélagi er heilsa og líðan allra íbúa í fyrirrúmi í allri stefnumótun og aðgerðum á öllum sviðum og allir geirar hafa hlutverk. Unnið er með áhrifaþætti heilbrigðis og vellíðanar s.s. félags-, efnahags- og menningarlegar aðstæður, manngert og náttúrulegt umhverfi til að skapa sem ákjósanlegastar aðstæður í lífi, leik og starfi fyrir fólk á öllum æviskeiðum. Holla valið þarf að vera eins auðvelt og kostur er s.s. að hreyfa sig, borða hollt, rækta geðið og ástunda grænan lífsstíl á sama tíma og spornað er gegn áhættuhegðun s.s. neyslu tóbaks, áfengis og annarra vímuefna. Stuðningur við starf Heilsueflandi leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla er mikilvægur liður í starfi Heilsueflandi samfélags.
Markvisst lýðheilsustarf í Heilsueflandi samfélögum
Sveitarfélög hafa sjálf frumkvæði að því að gerast Heilsueflandi samfélag. Skilyrðin fyrir þátttöku eru að bæjar-/sveitarstjóri skrifi undir umsókn um þátttöku, skipaður sé þverfaglegur stýrihópur fyrir starfið sem tryggir aðkomu lykilhagsmunaaðila að því og sérstakur tengiliður er tilnefndur. Með undirskrift samnings um Heilsueflandi samfélag einsetja sveitarfélög sér að vinna markvisst lýðheilsustarf, í samræmi við markmið og leiðarljós Heilsueflandi samfélags með stuðningi frá Embætti landlæknis og öðrum sem að starfinu koma. Í markvissu lýðheilsustarfi er bilið á milli gagna, stefna og aðgerða brúað með því að nota lýðheilsuvísa, gátlista og önnur gögn til að meta stöðuna og forgangsraða í samræmi við þarfir hvers samfélags.
Á hverju byggir Heilsueflandi samfélag?
Hugmyndafræði og starf Heilsueflandi samfélags byggir m.a. á Ottawa Charter for Health promotion, Health in All Policies, Healthy Cities og Health Promoting Schools sem þróað er af Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni o.fl. sem og fyrri reynslu af öðru, sambærilegu starfi hérlendis og erlendis.
Hafa samband: samfelag@landlaeknir.is
Þjónustuaðili
Embætti landlæknis