Fara beint í efnið

1. október 2026

Skýrslugjöf um kynbundin launamun í stað jafnlaunavottunar: námskeið

Í stað jafnlaunavottunar þurfa fyrirtæki og stofnanir, sem uppfylla viss skilyrði, nú að skila inn reglubundinni skýrslu til Jafnréttisstofu.

Í stað jafnlaunavottunar þurfa fyrirtæki og stofnanir, sem uppfylla viss skilyrði, nú að skila inn reglubundinni skýrslu til Jafnréttisstofu.

Jafnréttisstofa býður því upp á regluleg opin fjarnámskeið þar sem fjallað verður um nýja fyrirkomulagið og hvernig skýrslugjöfin fer fram. Einnig gefst þátttakendum kostur á að bera fram spurningar. Námskeiðin eru ókeypis.

Fyrir hvern?

Stjórnendur og tengiliði hjá fyrirtækjum og opinberum aðilum þar sem að jafnaði starfa fleiri en 50 einstaklingar.

Hvað er tekið fyrir?

  • Grunnatriði nýrrar skýrslugjafar um kynbundin launamun

  • Kröfur um gagnaskil

  • Inntak gagna

  • Hvernig gögnum er skilað

  • Hvernig unnið verður með gögnin

Nánar um námskeiðin

Námskeiðin fara fram í gegnum Teams, annan hvern fimmtudag milli kl. 11 og 12.
Hægt er að skrá sig hér.

Skráning og næstu námskeið:

Athugið að Jafnréttisstofa áskilur sér rétt til að fella niður námskeið vegna dræmrar þátttöku. Í þeim tilfellum er skráðum þátttakendum gefinn kostur á að velja aðra dagsetningu.

Frestur til að skila skýrslu

  • Fyrirtæki og stofnanir sem þegar hafa öðlast jafnlaunavottun skulu skila gögnum að þremur árum liðnum frá síðustu vottun.

  • Fyrirtæki með jafnlaunastaðfestingu Jafnréttisstofu skulu skila gögnum að þremur árum liðnum frá síðustu jafnlaunastaðfestingu.

  • Aðilar sem hvorki hafa öðlast jafnlaunavottun né jafnlaunastaðfestingu en falla undir lögin skulu skila gögnum fyrir 1. mars 2027.

Sjá nánar: