Fara beint í efnið
Jafnréttisstofa Forsíða
Jafnréttisstofa Forsíða

Jafnréttisstofa

Netnámskeið um skýrslugjöf um kynbundinn launamun – fyrir stjórnendur og tengiliði

Á námskeiðinu sem kennt verður í gegnum Teams verður farið yfir grunnatriði varðandi skýrslugjöf um kynbundinn launamun. Farið er yfir kröfur um gagnaskil, innihald gagnanna og innsetningu gagna í nýtt þjónustu- og gagnakerfi. Í lokin gefst þátttakendum tækifæri til að koma með spurningar til leiðbeinanda.

Til að þátttakendur fái sem mest út úr námskeiðinu eru þeir hvattir til að kynna sér fræðsluefni og leiðbeiningar er varða skýrslugjöf hér á síðunni.

Staðsetning: Rafrænt í gegnum Teams, þátttakendur fá sent fundarboð stuttu fyrir námskeið. 
Tímasetning: Á fimmtudögum frá 11 – 12. Sjá næstu dagsetningar hér fyrir neðan.  
Markhópur: Starfsfólk fyrirtækja og stofnana sem kemur að vinnu við skýrslugjöf 
Leiðbeinendur: Sérfræðingar Jafnréttisstofu  
Lengd: 1 klst.

Skráning og næstu námskeið:

Til upplýsinga: Jafnréttisstofa áskilur sér rétt til að fella niður námskeið vegna dræmrar þátttöku. Í þeim tilfellum er skráðum þátttakendum gefinn kostur á að velja aðra dagsetningu.

Jafnréttisstofa

Heim­il­is­fang

Borgum v/Norðurslóð
600 Akureyri

Opnun­ar­tími

mánudaga - fimmtudaga 9-15
föstudaga 9-12