Fara beint í efnið
Jafnréttisstofa Forsíða
Jafnréttisstofa Forsíða

Jafnréttisstofa

Skýrslugjöf um kynbundinn launamun

Skila inn skýrslugjöf um kynbundinn launamun

Með skýrslugjöf um kynbundinn launamun er tryggt að laun séu ákveðin á kerfisbundinn hátt; með skýrum, hlutlægum og gagnsæjum viðmiðum, þannig að einstaklingar fái sömu laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf, óháð kyni. Skýrslugjöfin myndar þannig grunn að ákveðnu jafnlaunakerfi sem kemur í veg fyrir að hægt sé að mismuna fólki í launum.

Fyrirtæki eða stofnanir með 50 starfsmenn eða fleiri þurfa að skila inn skýrslu um kynbundinn launamun til Jafnréttisstofu.  

Eftirfarandi gögnum skal skila:

  • Starfaflokkun

  • Launagreiningu

  • Áætlun um úrbætur, þegar við á

    Gild jafnréttisáætlun samþykkt af Jafnréttisstofu þarf að vera fyrir hendi áður en gögnum er skilað. 

Skýrslugjöf um kynbundinn launamun tryggir að laun séu ákveðin samkvæmt jafnlaunakerfi; með skýrum, hlutlægum og gagnsæjum viðmiðum, þannig að einstaklingar fái sömu laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf, óháð kyni.

Jafn­rétt­isáætlun

Jafnréttisáætlun er formleg aðgerðabundin áætlun sem fyrirtæki eða stofnanir setja til að tryggja jafna stöðu og tækifæri alls starfsfólks.

Nánar um jafnréttisáætlun

Starfaflokkun

Starfaflokkun felur í sér flokkun og mat á störfum út frá fyrirframákveðnum hlutlægum, kynhlutlausum viðmiðum þar sem lagt er mat á þær kröfur sem störf gera til starfsfólks.  

Nánar um starfaflokkun

Launa­greining

Launagreiningin byggir á starfaflokkuninni og sýnir meðaltal fastra mánaðarlauna fyrir dagvinnu, fastar viðbótargreiðslur fyrir störf og allar aukagreiðslur eftir kynjum.  

Nánar um launagreiningu

Úrbótaáætlun

Sýni niðurstaða launagreiningar óskýrðan launamun kynjanna yfir 3,9% og launamuninn er ekki unnt að skýra með málefnalegum hætti, skal fyrirtæki eða stofnun skila inn úrbótaáætlun.

Nánar um úrbótaáætlun

Jafnréttisstofa

Heim­il­is­fang

Borgum v/Norðurslóð
600 Akureyri

Opnun­ar­tími

mánudaga - fimmtudaga 9-15
föstudaga 9-12