Starfaflokkun
Starfaflokkun felur í sér flokkun starfa út frá fyrirframákveðnum hlutlægum viðmiðum fyrir mat á störfum. Viðmiðin þurfa að vera kynhlutlaus og þau eru notuð til að leggja mat á þær kröfur sem störf gera til starfsfólks, þannig að saman flokkist sömu eða jafn verðmæt störf.
Viðmiðin skulu hvorki byggjast beint né óbeint á kyni starfsfólks.
Flokkunin skal taka til allra starfa innan fyrirtækis eða stofnunar, jafnt stjórnendastarfa sem og annarra, og notast skal við sömu viðmið og mælikvarða á öll störf.
Viðmið fyrir mat á störfum
Að lágmarki skal meta störf út frá:
ábyrgð
álagi
hæfni
vinnuaðstæðum
Valkvætt er að bæta við fleiri málefnalegum viðmiðum og nota undirviðmið. Gæta skal að því að vanmeta ekki mjúka færni.
Viðmið fyrir mat á einstaklingsbundinni hæfni starfsfólks
Heimilt er að meta einstaklingsbundna hæfni starfsfólks með yfir- og undirviðmiðum. Sömu viðmið um einstaklingsbundna hæfni skulu gilda fyrir allt starfsfólk.
Starfstengd viðmiði lýsa starfinu án tillits til hvaða einstaklingur sinnir því.
Einstaklingsbundnu viðmiðin snúa að einstaklingnum án tillits til starfsins sem viðkomandi sinnir.
Einstaklingsbundin viðmið skýra oft þann launamun sem kann að vera milli einstaklinga sem sinna sama eða jafnverðmætu starfi.
