Um Jafnréttisstofu
Hlutverk Jafnréttisstofu er að fylgjast með því að jafnréttislögum sé fylgt. Stofnunin veitir fræðslu, upplýsingar og ráðgjöf og leggur tillögur fyrir stjórnvöld um aðgerðir sem auka jafnrétti.
Hún hvetur til virkri þátttöku í jafnréttismálum, fylgist með þróun þeirra í samfélaginu og hefur frumkvæði að rannsóknum og úttektum.
Stofnunin vinnur að forvörnum gegn kynbundnu ofbeldi og áreitni. Hún vinnur gegn launamisrétti og annarri mismunun á vinnumarkaði og aðstoðar við að ná sáttum í ágreiningsmálum sem tengjast lögunum. Stofnunin vinnur einnig gegn skaðlegum staðalímyndum og sér um jafnlaunavottun og jafnlaunastaðfestingu. Að lokum sinnir hún öðrum verkefnum sem ráðherra felur henni.
Jafnréttisstofa starfar samkvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, lögum um jafna meðferð á vinnumarkaði og utan hans. Stofnunin heyrir undir dómsmálaráðherra.
Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu er Martha Lilja Olsen, marthalilja hjá jafnretti.is
Hægt er að hafa samband við Jafnréttisstofu með því að senda póst á jafnretti hjá jafnretti.is
