Námskeið
Jafnréttisstofa býður upp á ýmis námskeið fyrir vinnustaði og sveitarfélög.

Ká-vitinn fyrir vinnustaði
Markmið fræðslunnar er að starfsfólk og stjórnendur þekki birtingarmyndir og afleiðingar kynferðislegrar áreitni og fái verkfæri til að vinna gegn slíkri hegðun.

Jafnrétti og mismunun á vinnumarkaði
Á námskeiðinu er fjallað um jafnrétti og mismunun á vinnumarkaði. Farið er yfir skyldur atvinnurekenda og réttindi starfsfólks samkvæmt jafnréttislögum.

Inngilding og samþætting fyrir sveitarfélög
Á námskeiðinu er fjallað um inngildingu og samþættingu kynja- og mannréttindasjónarmiða hjá sveitarfélögum.

Netnámskeið um heimilisofbeldi - fyrir fagfólk
Markmiðið með námskeiðinu er að auka þekkingu fagfólks um land allt á heimilisofbeldi.
