Netnámskeið um heimilisofbeldi - fyrir fagfólk
Hér að neðan er að finna netnámskeið. Markmiðið með námskeiðinu er að auka þekkingu fagfólks um land allt á heimilisofbeldi og auðvelda svör við spurningum, til að mynda:
Hvernig berum við kennsl á þolendur og gerendur?
Hvernig skal bregðast við?
Hvaða úrræði eru fyrir hendi á Íslandi?
Hverju þarf að huga að við vinnslu á málum er varða fatlað fólk, barnshafandi einstaklinga, fólk af erlendum uppruna, hinsegin fólk og einstaklinga af öðrum minnihlutahópum?
Námskeiðið samanstendur af 13 myndböndum.
