Jafnréttisáætlun
Jafnréttisáætlun er skipulögð áætlun sem fyrirtæki eða stofnanir setja til að tryggja jafna stöðu og tækifæri alls starfsfólks.
Hún skilgreinir markmið og aðgerðir til að stuðla að:
Launajafnrétti
Jafnrétti í ráðningum
Starfsþróun
Betra vinnuumhverfi
Koma í veg fyrir mismunun og áreitni.
Áætlunin hjálpar vinnustöðum að byggja upp sanngjarnt, öruggt og faglegt starfsumhverfi.
Áætlanir sveitarfélaga um jafnréttismál falla undir aðrar lagaskyldur. Nánari upplýsingar um sveitarfélögin.
Mikilvægt er að kynna áætlunina vel fyrir öllu starfsfólki.
