Sveitarfélög
Sveitarfélög hafa margvíslegar skyldur gagnvart íbúum sínum þegar kemur að jafnréttismálum.
Vegna nálægðar við íbúana og þess þríþætta hlutverks sem þau hafa, sem stjórnvald, vinnuveitandi og þjónustuveitandi eru þau í afar góðri stöðu til þess að uppfylla skyldur sínar.
Sveitarstjórnum ber að gera áætlun um jafnréttismál til fjögurra ára í senn. Áætlunin skal lögð fram til samþykktar í viðkomandi sveitarstjórn eigi síðar en ári eftir sveitarstjórnarkosningar, framvinda hennar rædd árlega í sveitarstjórn og hún endurskoðuð eftir þörfum.
Áætlanir sveitarfélaga um jafnréttismál eru ekki háðar samþykki Jafnréttisstofu, þó er hægt að senda þær inn til umsagnar.
Jafnréttisstofa hefur eftirlit með framkvæmd laganna og veitir sveitarfélögunum stuðning.
Fræðsla og útgefið efni
Tölfræðisýnin hér að neðan sýnir upplýsingar um kynjahlutföll í ráðum og nefndum sveitarfélaganna árið 2022
