Skólar
Jafnrétti snertir allt skólastarf.
Því þarf að fjalla um jafnrétti í skólum, bæði oft og á mörgum sviðum.
Jafnrétti á einnig að vera hluti af andrúmslofti og menningu hvers skóla.
Það er skylda hvers skóla að fræða nemendur um janfrétti kynjanna og að undirbúa nemendur til jafnrar þátttöku í fjölskyldu- og atvinnulífi.
Mikilvægt er að hafa eftirfarandi í huga:
Samþættingar kynja- og jafnréttissjónarmiða skal gætt við alla stefnumótun og áætlanagerð í skóla- og uppeldisstarfi, þar á meðal á frístundaheimilum og í íþrótta- og tómstundastarfi.
Á öllum skólastigum skulu nemendur hljóta jafnréttis- og kynjafræðslu við hæfi þar sem meðal annars er kennt um kynjaðar staðalímyndir, kynbundið náms- og starfsval og málefni fatlaðs fólks og hinsegin fólks.
Tryggja að öll kennslu- og námsgögn mismuni ekki kynjum.
Í náms- og starfsfræðslu og við ráðgjöf í skólum skulu nemendur hljóta fræðslu og ráðgjöf í tengslum við sömu störf, óháð kyni.
