Jafnréttisfræðsla í skólum
Síðan fyrstu jafnréttislögin voru sett árið 1976 hefur íslenskum skólum verið skylt að fræða nemendur um jafnrétti kynjanna og undirbúa bæði stráka og stelpur til jafnar þátttöku í fjölskyldu‑ og atvinnulífi.
Núgildandi lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna setja skýrar reglur um þetta hlutverk skólakerfisins.
Menntun og skólastarf
Í skóla‑ og uppeldisstarfi ber að hafa eftirfarandi í huga:
Samþætting jafnréttissjónarmiða skal vera hluti af allri stefnumótun og áætlanagerð, þar á meðal í frístundaheimilum og íþrótta‑ og tómstundastarfi.
kynjaðar staðalímyndir
kynbundið náms‑ og starfsval
málefni fatlaðs fólks
málefni hinsegin fólks
Nemendur á öllum skólastigum eiga að fá fræðslu við hæfi um jafnréttis‑ og kynjafræði. Þar er m.a. fjallað um:
Kennslu- og námsgögn
skulu vera þannig úr garði gerð að þau mismuni ekki kynjum.
Náms- og starfsráðgjöf
skal tryggja að nemendur fái fræðslu og leiðsögn um sömu störf og tækifæri – óháð kyni.
Skyldur mennta- og barnamálaráðuneytisins
Ráðuneytinu ber að:
Efla rannsóknir á stöðu kynjanna í íslensku samfélagi og miðla niðurstöðum markvisst til skóla og fjölmiðla.
Fylgjast með því að jafnrétti kynjanna sé virt í öllu skóla- og uppeldisstarfi, þar á meðal í frístundaheimilum og íþrótta- og tómstundastarfi.
Fylgjast með þróun jafnréttismála á þessum sviðum samfélagsins.
Tryggja að jafnréttisráðgjafi starfi innan ráðuneytisins. Ráðgjafinn:
fylgir eftir ákvæðum laganna
veitir skólasamfélaginu ráðgjöf í jafnréttismálum
styður sértækar aðgerðir sem stuðla að jafnrétti kynjanna
Skyldur skólastjórnenda og yfirmanna stofnana
Atvinnurekendur, skólastjórnendur og yfirmenn félagasamtaka, íþrótta- og æskulýðsfélaga skulu:
Gera sérstakar ráðstafanir
til að koma í veg fyrir kynbundið ofbeldi, kynbundna áreitni eða kynferðislega áreitni gagnvart starfsfólki, nemendum og notendum þjónustu.
Tryggja öruggt starfs- og námsumhverfi þar sem slík háttsemi er ekki liðin.
Ef yfirmaður er kærður fyrir slíka háttsemi er hann vanhæfur til að taka ákvarðanir sem varða kæranda á meðan málið er til meðferðar — næsti yfirmaður skal þá taka yfir þær ákvarðanir.
