Samfélagið
Jafnrétti er einn af hornsteinum íslensks samfélags og felur í sér að allir einstaklingar eigi að hafa sömu tækifæri – óháð kyni, uppruna, fötlun, kynhneigð, aldri og fleiru.
Ísland hefur náð langt í jafnréttismálum. Samt geta gamlar venjur og hvernig samfélagið er skipulagt enn skapað hindranir. Oft gerist það án þess að fólk taki eftir því. Slíkar ósýnilegar hindranir geta haft áhrif á hvaða tækifæri fólk fær, hvaða hlutverk það tekur að sér og hvernig það er metið í samfélaginu.
Helstu áskoranir sem enn eru til staðar:
Ómeðvitaðar, gamlar venjur og samfélagslegt skipulag
Ósýnilegar hindranir sem hafa áhrif á tækifæri, hlutverk og mat samfélagsins á einstaklingum
Til þess að tryggja raunverulegt jafnrétti þarf markvissa og meðvitaða vinnu. Það felur meðal annars í sér að greina þær aðstæður sem valda mismunun, vinna gegn fordómum og tryggja að kerfi og stofnanir bjóði upp á jöfn tækifæri fyrir öll. Þegar við gerum fjölbreytileika sýnilegan og metum hann sem styrk eflum við samfélagið í heild – fjölbreytt samfélag er öflugt samfélag.
Til að ná fram jafnrétti þarf að:
Greina og bregðast við aðstæðum sem skapa mismunun
Vinna gegn fordómum
Tryggja jöfn tækifæri innan kerfa og stofnana
Meta og virða fjölbreytileika
Jafnrétti er ekki staða sem endanlega verður náð, heldur ferli sem krefst stöðugrar samvinnu. Með því að draga úr hindrunum, styðja við fjölbreytt sjónarhorn og skapa umhverfi þar sem öll njóta virðingar og tækifæra, byggjum við réttlátara og heilbrigðara samfélag.

Sveitarfélög
Sveitarfélög hafa margvíslegar skyldur gagnvart íbúum sínum þegar kemur að jafnréttismálum.

Skólar
Jafnrétti snertir allt skólastarf, um það þarf að fjalla í skólum, bæði oft og víða, og það á vera hluti af andrúmslofti og menningu hvers skóla.

Íþróttafélög
Jafnréttisstofa og ÍSÍ hvetja allar einingar í íþróttahreyfingunni til að vinna markvisst að jafnrétti í íþróttum og nýta sér jafnréttisáætlunina og leiðbeiningarnar til úrbóta þar sem þeirra er þörf.
