Íþróttafélög
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Jafnréttisstofa hafa átt í góðu samstarfi undanfarin ár og gefið út jafnréttisáætlun sem öll íþróttafélög geta nýtt sér í sínu starfi. Eins hafa verið gefnar út leiðbeiningar fyrir íþróttafélög um gerð jafnréttisáætlana.
Jafnréttisáætlunin er ætluð fyrir öll íþróttafélög en sérstaklega er ætlast til þess að öll Fyrirmyndarfélög ÍSÍ samþykki þessa áætlun og noti hana í sínu starfi. Jafnréttisáætlunin tekur á hinum ýmsu þáttum jafnréttis og með notkun leiðbeininganna geta íþróttafélög betur fundið út sína stöðu og leiðrétt óhagstæða stöðu ef hún er fyrir hendi.
Jafnréttisstofa og ÍSÍ hvetja allar einingar í íþróttahreyfingunni til að vinna markvisst að jafnrétti í íþróttum og nýta sér jafnréttisáætlunina og leiðbeiningarnar til úrbóta þar sem þeirra er þörf.
Fræðsla og útgefið efni
Tölfræðisýnin hér að neðan sýnir upplýsingar um kynjahlutföll í áhrifastöðum íþróttahreyfingarinna árið 2024
