HVERS VEGNA EKKI?! er skemmtileg og metnaðarfull sjónvarpsþáttaröð sem hefur notið mikilla vinsælda víða í Evrópu og hlotið fjölmargar viðurkenningar.Þættirnir fylgja ævintýralegri sögu Önnu Sooväli, sem fer frá því að vera „bekkjarlúðinn“ í að verða ofursvala rappstjarnan NoJik. Áhorfendur fá líka að skyggnast inn í líf Önnu, bæði innan fjölskyldunnar og meðal vina, sem er allt nema venjulegt.
Um efni og markmið þáttanna
Þáttaröðin fjallar á léttum og kómískum nótum um kynjaðar staðalmyndir og mismunun.
Hún er hluti af þverevrópsku samstarfsverkefni sem Jafnréttisstofa vann með jafnréttisstofnunum í Eistlandi og Litháen. Markmiðið var að draga úr kynjuðum staðalmyndum, sérstaklega í tengslum við náms- og starfsval ungs fólks.Með þáttunum fylgja einnig kennsluleiðbeiningar sem nýtast kennurum og náms- og starfsráðgjöfum í jafnréttisfræðslu.Verkefnið var styrkt af Evrópusambandinu.
Leiðbeiningar fyrir starfsráðgjafa
Leiðbeiningar fyrir kennara um jafnrétti kynjanna og kynbundið starfsval
Anna er að útskrifast úr framhaldsskóla og ætti að vera að læra fyrir lokapróf – en hún getur bara hugsað um eitt: að verða rappari. Það er svolítið ólíklegt markmið þar sem Anna hefur stamað frá fæðingu og er talin vera „bekkjarlúði“.
Á sama tíma eru miklar breytingar fram undan hjá fjölskyldunni og þeir eiga eftir að ganga í gegnum erfiða tíma.
Á tveimur stöðum í þættinum er boðið uppá valkvæðar senur.
Fyrri senan er breytt útgáfa af atriði sem byrjar á mínútu 17:55 en seinni útgáfan er breytt útgáfa af atriði sem byrjar á mínútu 21:35
Anna á erfitt uppdráttar. Hún er að útskrifast, vinnur við uppvask á veitingastað og þarf líka að takast á við einelti í skólanum. Heima fyrir gengur allt á afturfótunum – pabbi hennar virðist eiga erfitt og bæði bróðir hennar og afi hegða sér undarlega.
Hvernig á hún að komast í gegnum þetta allt saman?
Á tveimur stöðum í þættinum er boðið uppá valkvæðar senur.
Fyrri senan er breytt útgáfa af atriði sem byrjar á mínútu 06:41 en seinni útgáfan er breytt útgáfa af atriði sem byrjar á mínútu 14:38
Anna ákveður að elta drauminn um að verða rappari. Hún skráir sig í rapparikeppni, en til þess þarf hún að gera flott myndband. Kannski getur Vadim, einn af hinum „bekkjarlúðunum“, hjálpað henni?Heima bíða aðrar áhyggjur: fjölskyldan á í peningavanda og virðist lifa á lágum uppvaskalaunum Önnu. Hvernig á hún að leysa þetta allt?
Valkvæð sena er í boði fyrir atriði sem byrjar á mínútu 21:07
Anna uppgötvar að Keido, sæti strákurinn í bekknum, er ekki bara upp á punt heldur hefur hann líka mjög ákveðnar hugmyndir. Liis, besta vinkona Önnu, er hins vegar bálskotin í Keido sem flækir málið talsvert. Heima fyrir er allt í háaloft, engir peningar, pabbi klikk og afi að verða góðkunningi lögreglunnar. Allt þetta verður Önnu hvatning áfram í rappinu. Anna er spennt fyrir battlinu og er að skapa sinn eigin stíl og skilaboð.
Valkvæð sena - breytt útgáfa af atriði sem byrjar á mín. 23:26.
Liis hefnir sín á Önnu með því að segja öllum í skólanum frá brjáluðum rappdraumum hennar. Anna fær að kenna á því frá bekkjarfélögunum og ekki skánar það þegar umsjónarkennarinn sendir hana til skólasálfræðingsins. Sem betur fer er ástandið heima að skána örlítið þar sem mamma hennar hefur ákveðið að taka slaginn við fyrrum yfirmann sinn. Anna heldur líka áfram að berjast og sendir nýja rappmyndbandið í keppnina.
Valkvæð sena - breytt útgáfa af atriði sem byrjar á mín. 16:19.
Það er allt að fara úr böndunum! Á meðan Anna bíður eftir að fá að vita hvort hún komist í úrslitabattlið er Martin, pabbi hennar, að vinna að hönnun sinnar fyrstu fatalínu, Liis heldur brjálað partí heima hjá sér, bekkjarfélagar hennar eru að undirbúa bankarán og glæpagengi kemur inn í myndina.
Valkvæð sena - breytt útgáfa af atriði sem byrjar á mín. 02:05.
Anna undirbýr sig fyrir úrslitin í battlinu en svo virðist sem allur heimurinn sé á móti henni. Samskiptin á vinnustaðnum hennar eru erfið og samskiptin við Liis, bestu vinkonu hennar, eru enn þá verri. Til að bæta gráu ofan á svart þá dröslar afi hennar sprengju inn á heimilið.
Valkvæð sena - breytt útgáfa af atriði sem byrjar á mín. 19:40.
Anna kemst í úrslitin í battlinu og hittir þar keppinautana, naglharða, tattóveraða gaura. Látum battlið hefjast!
Þáttur 8
Anna kemst í úrslitin í battlinu og hittir þar keppinautana, naglharða, tattóveraða gaura. Látum battlið hefjast!
Valkvæð sena - breytt útgáfa af atriði sem byrjar á mín. 22:27.
Valkvæð sena - breytt útgáfa af atriði sem byrjar á mín. 22:27.
Fjölskylda Önnu undirbýr garðsölu til að hjálpa Martin að fjármagna fatalínuna og tískudraumana. Önnu gengur hins vegar illa að fóta sig og finnst hún ein og yfirgefin. Hvað gera konur þá?
Valkvæð sena - breytt útgáfa af atriði sem byrjar á mín. 02:13.
Rappstjarnan Genka vill fá að hitta Önnu til að ræða eitthvað. Það er ekki alveg ljóst hvað hann vill og Anna veit ekkert við hverju hún á að búast. Anna þarf að hjálpa pabba sínum með tískusýninguna og Genka lofar að mæta þangað.
Við tvö atriði í 10. þætti er boðið upp á valkvæðar senur. Fyrri senan er breytt útgáfa af atriði sem byrjar á mín. 07:29. Seinni senan er breytt útgáfa af atriði sem byrjar á mín. 14:27.