Inngilding og samþætting fyrir sveitarfélög
Námskeið: Inngilding og samþætting – fyrir sveitarfélög
Staðsetning: Staðarnámskeið
Tímasetning: Eftir samkomulagi
Markhópur: Stjórnendur og kjörnir fulltrúar
Verð: 150.000.-
Leiðbeinendur: Sérfræðingar Jafnréttisstofu
Lengd: 2,5 klst.
Skráning: Sveitarfélög geta pantað fræðsluna með því að senda erindi á jafnretti@jafnretti.is
Námskeiðslýsing:
Á námskeiðinu er fjallað um hvernig sveitarfélög geta samþætt kynja- og mannréttindasjónarmið í daglegu starfi. Við förum yfir lagalegar skyldur þeirra, helstu áskoranir og hvaða aðstæður þarf til að ná góðum árangri.
Sveitarfélög bera ríka ábyrgð á að samþætta kynja- og jafnréttissjónarmið í allri starfsemi – í starfsmannamálum, fjárhagsáætlun og þjónustu við íbúa. Þar sem þau eru í nánum tengslum við íbúana eru þau í sterkri stöðu til að sinna þessum skyldum á mörgum sviðum, svo sem í mannauðsmálum, skólastarfi, frístundaheimilum og íþrótta- og æskulýðsstarfi.
