Úrbótaáætlun
Sýni niðurstaða launagreiningar leiðréttan launamun kynjanna yfir 3,9% og launamuninn er ekki unnt að skýra með málefnalegum hætti, skal fyrirtæki eða stofnun skila inn áætlun um úrbætur. Fari kynbundinn launamunur yfir ofangreint viðmið dregur launagreiningin fram þau frávik sem þarfnast skýringa og/eða úrbóta eftir atvikum.
Með áætlun um úrbætur er átt við:
áætlun um leiðréttingu á launum og kjörum, vegna kynbundins launamunar sem ekki hefur verið unnt að skýra á málefnalegan hátt.
áætlun um að leiðrétta orsök frávika í launasetningu ef ekki er unnt að útskýra frávik á málefnalegan hátt.
Áætlun um úrbætur skal vera tímasett og tilgreina þarf hvaða málefnalegu skýringar liggja að baki fráviki, eða eftir atvikum til hvaða aðgerða skal gripið til að leiðrétta kynbundinn launamun, ábyrgðaraðila þess að þær komi til framkvæmda, og hvenær þeim skuli lokið.
Aðgerðum úrbótaáætlunar skal vera framfylgt að fullu áður en kemur að næstu skýrsluskilum, að þremur árum liðnum.
