Launagreining
Launagreiningin byggir á starfaflokkuninni og sýnir meðaltal fastra mánaðarlauna fyrir dagvinnu, fastar viðbótargreiðslur fyrir störf og allar aukagreiðslur eftir kynjum.
Við launagreininguna skal taka tillit til allra þátta launa og kjara. Hér er um að ræða almennt endurgjald fyrir störf og hvers konar frekari þóknun, hvort sem um er að ræða beinar greiðslur eða önnur hlunnindi sem metin verða til fjár.
Innsetning gagna til að framkvæma launagreiningu:
Velja þarf launatímabil a) eða b)
a) Einn valinn mánuður
b) Meðaltal launa á 12 mánaða tímabiliSkrá þarf upplýsingar um öll störf og starfsfólk á hinu valda tímabili
Skrá þarf upplýsingar um öll laun og launaliði á hinu valda tímabili
Launagreining sýnir:
Meðaltal fastra mánaðarlauna fyrir dagvinnu, greint eftir kynjum
Fastar viðbótargreiðslur fyrir störf, greint eftir kynjum
Allar aukagreiðslur, greint eftir kynjum
Jafnlaunakerfi tryggir launasetningu í samræmi við virði starfa þannig að laun fylgi stigum.
Niðurstaða launagreiningar dregur fram:
Sýni niðurstaða launagreiningar leiðréttan launamun kynanna yfir 3,9% og launamuninn er ekki unnt að skýra með málefnalegum hætti, skal fyrirtæki eða stofnun skila inn áætlun um úrbætur.
Á yfirlitssíðu niðurstöðu launagreiningar í þjónustu og gagnakerfi Jafnréttisstofu sést leiðréttur og óleiðréttur launamunur og eftir atvikum þau frávik sem þarfnast skýringa eða eftir atvikum úrbóta.
Hvers vegna 3,9%?
Leiðréttur launamunur kynjanna mælist nú 3.6% á Íslandi. Tekið er tillit til vikmarka og er því miðað við 3.9% þegar að kemur að því að ákvarða hvort að fyrirtæki og/eða stofnanir eigi að skila úrbótaáætlun. Viðmiðið er endurskoðað reglulega af Jafnréttisstofu með tilliti til þróunar launamunar kynjanna.
