Fara beint í efnið
Jafnréttisstofa Forsíða
Jafnréttisstofa Forsíða

Jafnréttisstofa

Þjónustu- og gagnakerfi

Hvað er þjónustu- og gagnakerfi Jafnréttisstofu

Þjónustu- og gagnakerfið er rafrænt ferli fyrir fyrirtæki og stofnanir til að skila gögnum til Jafnréttisstofu í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Öll fyrirtæki eða stofnanir með 25 eða fleiri starfsmenn að jafnaði á ársgrundvelli þurfa að skila inn jafnréttisáætlun og öll fyrirtæki eða stofnanir með 50 starfsmenn eða fleiri þurfa auk þess að skila skýrslu ásamt gögnum sem sýna fram á að launakerfi þess mismuni ekki á grundvelli kyns. 

Þjónustu- og gagnakerfið tekur á móti launagögnum, starfsmati og starfaflokkun og fer sjálfkrafa yfir gögnin. Kerfið birtir að því búnu launagreiningu sem dregur fram kynbundinn launamun, sé hann fyrir hendi, og kallar eftir úrbótaáætlunum gerist þess þörf. Kerfið heldur auk þess utan um eftirlit og eftirfylgni Jafnréttisstofu vegna skýrslugjafar um kynbundinn launamun og samskipti stofnunarinnar við fyrirtæki og stofnanir vegna hennar.

Aðgangur að kerfinu

Notendur skrá sig inn með rafrænum skilríkjum í gegnum Ísland.is. Allir notendur þurfa að fara inn í umboði fyrirtækis/stofnunar. 


Skil eftir stærð fyrirtækis eða stofnunar


Mat á niðurstöðum 

Þegar launagreining hefur verið unnin metur kerfið niðurstöðuna sjálfkrafa út frá stærð kynbundins launamunar/frávika og setur málið í annan af tveimur ferlum:

  • Leiðréttur launamunur kynjanna er 3,9% eða lægri: Skýrslan er samþykkt sjálfkrafa og engra frekari aðgerða er þörf. 

  • Leiðréttur launamunur kynjanna er yfir 3,9%: Krafa um skil á úrbótaáætlun.

Úrbótaáætlanir

Úrbótaáætlun má skila inn strax, samhliða launagreiningu, eða haka við að skila henni innan þriggja mánaða frá skiladagsetningu skýrslugjafar. Sé hakað við að skila síðar fær fyrirtæki/stofnun áminningu senda í pósthólf áður en þriggja mánaða skilafrestur er liðinn. Þegar úrbótaáætlun er tilbúin er hægt að klára ferlið og skila skýrslu ásamt úrbótaáætlun til yfirferðar hjá Jafnréttisstofu.

Sé úrbótaáætlunar þörf tekur við eitt af eftirfarandi skrefum:

  1. Fullnægjandi úrbótaáætlun er skilað samhliða skýrslugjöfinni eða innan 3 mánaða frá skiladagsetningu skýrslugjafar. Frekari aðgerða er ekki þörf. Fyrirtæki/stofnun vinnur samkvæmt úrbótaáætlun þar til aðgerðum er lokið.

  2. Úrbótaáætlun er ekki fullnægjandi eða henni er ekki skilað innan þriggja mánaða. Málinu vísað til lögfræðings Jafnréttisstofu.

  3. Dagsektir: Sé úrbótaáætlun hafnað eða hún berst ekki innan lögboðins frests er Jafnréttisstofu heimilt að beita dagsektum þar til fullnægjandi úrbótaáætlun berst.

Samanburður milli tímabila

Þegar fyrirtæki/stofnun sendir að þremur árum liðnum inn nýja skýrslu sem inniheldur úrbótaáætlun kannar kerfið fyrst hvort síðustu skýrslu hafi fylgt úrbótaáætlun:

  • Ef eldri úrbótaáætlun er til staðar ber kerfið saman launamun/frávik í núverandi skýrslu við fyrri úrbótaáætlun.

    • Launamunur hærri en í fyrri úrbótaáætlun – verri staða flögguð sérstaklega og úrbótaáætlun fer í eftirlit þar sem hún borin saman við fyrri úrbótaáætlun.

    • Launamunur lægri en í fyrri úrbótaáætlun – ekki flaggað sérstaklega. Fer í hefðbundna yfirferð hjá Jafnréttisstofu.

  • Báðar útkomur fara að lokum í hefðbundið eftirlit til yfirferðar hjá Jafnréttisstofu.

  • Skýrslur án frávika sem mælast sem kynbundinn launamunur þarfnast ekki úrbótaáætlunar og eru samþykktar sjálfkrafa af kerfinu án handvirkrar yfirferðar.

Yfirferð Jafnréttisstofu 

Jafnréttisstofa hefur eftirlit með að fyrirtæki og stofnanir skili gögnum sem uppfylla kröfur og að unnið sé samkvæmt úrbótaáætlun. Jafnréttisstofu er því heimilt að krefjast þeirra gagna sem nauðsynleg eru til þess að sinna eftirlitshlutverkinu. 

Varðveisla gagna

Innsendar jafnréttisáætlanir, niðurstöður launagreiningar og úrbótaáætlanir eru varðveittar hjá Jafnréttisstofu. Gögn sem eru notuð til greininga eru ekki geymd. 

Dagsektir

Vegna eftirlits og eftirfylgni með skilum á jafnréttisáætlunum og skýrslugjöf um kynbundin launamun, hefur Jafnréttisstofa heimild til að leggja á dagsektir í eftirfarandi tilvikum:

  1. Sé jafnréttisáætlun ekki skilað á tilskildum tíma.

  2. Sé skýrslu um kynbundinn launamun ekki skilað á tilskildum tíma.

  3. Sé úrbótaáætlun ekki skilað innan tímafrests.

  4. Sé ekki brugðist við beiðni Jafnréttisstofu um upplýsingar og/eða gögn sem nauðsynleg eru vegna eftirlits og eftirfylgni innan uppgefins tímafrests.

Dagsektir falla niður um leið og fyrirtæki/stofnun uppfyllir lagaskyldur sínar.

Opinber birting gagna

Jafnréttisstofa heldur skrá yfir fyrirtæki og stofnanir sem hafa sent tilskilin gögn og birtir hana á vef stofnunarinnar. Í skránni koma m.a. fram upplýsingar um nafn fyrirtækis eða stofnunar, kennitölu og heimilisfang viðkomandi og gildistíma skýrslugjafar um kynbundinn launamun.


Jafnréttisstofa

Heim­il­is­fang

Borgum v/Norðurslóð
600 Akureyri

Opnun­ar­tími

mánudaga - fimmtudaga 9-15
föstudaga 9-12