Fara beint í efnið

9. apríl 2026

RSV bólusetningum hefur verið hætt á þessu tímabili

Bólusetningum gegn RSV fyrir nýfædd börn var hætt 8. apríl. Upphaflega hafði verið gert ráð fyrir að þeim yrði ekki haldið áfram eftir 1. apríl, en RSV faraldur þessa vetrar byrjaði mjög seint og þótt hann yrði aldrei mjög útbreiddur var hann ekki örugglega á niðurleið fyrir mánaðamótin, svo bólusetningar héldu áfram fram yfir páska.

Þátttaka í RSV bólusetningum í vetur var mjög góð. Þátttaka í mars var þó heldur lakari en fyrri mánuði og fá börn sem fæðst hafa í apríl hingað til hafa fengið bólusetningu.

Mynd 1. Þátttaka í RSV bólusetningum

Mynd 1. Þátttaka í RSV bólusetningunum hefur verið mjög góð.

RSV dreifing í vetur

Útbreiðsla RSV var mun minni en RSV tímabil síðustu tveggja ára (mynd 2). Þekkt er að RSV faraldrar eru mjög misþungir milli ára og er ekki hægt að eigna bólusetningum ungbarna minni útbreiðslu í öðrum aldurshópum. Hlutfallslega minna var um sýkingar í vetur hjá börnum á fyrsta æviári og sérstaklega hjá yngstu börnunum. Nánari upplýsingar um RSV faraldur þessa tímabils og fyrri tímabila er að finna í mælaborði sem er aðgengilegt á vef embættis landlæknis.

Mynd 2. RSV greiningar hjá SVEID

Mynd 2. RSV greiningar hjá Sýkla- og veirufræðideild LSH hafa verið mjög fáar það sem af er vetri miðað við sömu tímabili síðastliðna tvo vetur og fer nú greinilega fækkandi.

Jafnvel þótt RSV faraldur vetrarins hafi verið lágstemmdur eru teikn um að aldursdreifing greininga sé frábrugðin því sem við höfum vanist og standa vonir til að hægt verði að sýna fram á góð áhrif bólusetninga gegn RSV á heilsufar ungra barna hér á landi.

Endanleg úrvinnsla gagna um áhrif RSV bólusetninganna getur ekki farið fram fyrr en RSV tímabili er að fullu lokið og tölfræðilegur samanburður við fyrri ár verður traustari þegar annar vetur með bólusetningum verður að baki, en þó nokkur áhrif eru nú þegar greinileg. Einfalt líkan byggt á hlutfalli 7-12 mánaða barna af heildarfjölda barna með RSV veturna 2023-2024 og 2024-2025 getur gefið okkur grófa áætlun á því hversu mörg börn undir 6 mánaða aldri hefði mátt búast við að greindust með RSV í lágstemmdum faraldri vetrarins án bólusetninganna (mynd 3).

Mynd 3. Aldursdreifing RSV smita

Mynd 3. Aldurs-dreifing RSV smita hjá börnum undir 12 mánaða aldri í vetur og fyrri tvo vetur, auk útreiknaðs fjölda sem búast hefði mátt við í faraldri vetrarins án bólusetninga. Allt tímabil sýnt fyrir fyrri vetur.

Útreiknaður fjöldi (Líkan) er byggður á því að bólusetningar barna undir 6 mánaða aldri hafi engin áhrif haft á RSV hjá 7-12 mánaða gömlum börnum og er fjöldi þeirra notaður til að spá fyrir um hvernig dreifing hefði líklega orðið ef engar bólusetningar yngri barna hefðu farið fram í vetur. Líkanið gefur til kynna að án bólusetninganna hefði mátt búast við 70 tilfellum hjá börnum undir 12 mánaða aldri miðað við aldursdreifingu smita síðustu tvo vetur, í stað 36 sem greinst hafa þegar þetta er skrifað. Því virðist sem að án tillits til þátttöku í bólusetningunum hafi bólusetningarátakið dregið úr smitum hjá börnum undir 6 mánaða aldri um meira en helming. Líkanið hefur ákveðnar takmarkanir, svo sem notkun aldurs við greiningu en ekki fæðingarmánaðar sem hefur sterkari tengingu en aldurinn við það hvort barn átti kost á bólusetningu, en það gefur samt sem áður ákveðna vísbendingu um að jákvæðra áhrifa bólusetninga hafi gætt í RSV faraldri vetrarins.

Sóttvarnalæknir